Forstjóri Landsvirkjunar gagnrýnir tímaþröng við rammaáætlun Sæunn Gísladóttir skrifar 30. ágúst 2016 07:00 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, telur að athugasemdum Landsvirkjunar við tillögur verkefnisstjórnar um þriðja áfanga rammaáætlunar hafi ekki verið svarað. Vísir/Ernir
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, telur að athugasemdum Landsvirkjunar við tillögur verkefnisstjórnar um þriðja áfanga rammaáætlunar hafi ekki verið svarað. Hörður segist ekki skilja af hverju tillögurnar hafi verið unnar í tímaþröng. Verkefnisstjórn þriðja áfanga rammaáætlunar skilaði á föstudag umhverfis- og auðlindaráðherra tillögum sínum að flokkun virkjunarkosta. Um er að ræða fyrsta skiptið sem lögð er fram tillaga unnin í samræmi við lög um rammaáætlun sem tóku gildi að fullu árið 2013. „Í þessu ferli erum við að taka sem þjóð mjög mikilvægar ákvarðanir um nýtingu og vernd auðlindanna. Verkefnisstjórn hefur þurft að vinna vinnu sína í tímaþröng sem hefur haft veruleg áhrif á vinnu þeirra og ekki hefur náðst að skoða mjög mikilvæg atriði sem snúa að samfélagi og efnahag,“ segir Hörður. „Einnig kemur það sterkt fram hjá faghópi fjögur að þetta sé ekki í samræmi við hvernig aðrar þjóðir vinni að svona ákvörðunum,“ bætir Hörður við Stefán Gíslason, formaður verkefnisstjórnar, viðurkenndi í samtali við RÚV að rammaáætlun hefði verið unnin í tímaþröng. Hörður segist ekki skilja af hverju liggi á að taka svona umfangsmiklar ákvarðanir um flokkunina, það sé ljóst að þrýstingurinn komi ekki frá Landsvirkjun. „Við teljum að það vanti inn í þessar tillögur. Vissulega var ágætt að flokka einhverja kosti en við þessar aðstæður hefði verið skynsamlegra að fjölga kostum í biðflokki og gefa aðilum færi á að vinna greiningar sem snúa að áhrifum á samfélag og efnahag áður en svona umfangsmiklar ákvarðanir eru teknar,“ segir forstjóri Landsvirkjunar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira