Tregur stuðningur minn við vaxtalækkunina 30. ágúst 2016 10:00
Það er ekkert leyndarmál að ég hef verið mjög gagnrýninn á stjórnun peningamálastefnunnar víða um heim og síðan 2010-11 hef ég verið sérstaklega gagnrýninn á að Seðlabanki Evrópu hafi haft of mikla aðhaldsstefnu í peningamálum og almennt hef ég verið þeirrar skoðunar að peningamálastefnan bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum hafi verið of aðhaldssöm frekar en að hún hafi verið of lausbeisluð. En í tilfelli Íslands hef ég haft aðeins aðra skoðun. Þannig tel ég að Seðlabanki Íslands hafi gert þetta nokkurn veginn rétt undir stjórn Más Guðmundssonar og í fyrra studdi ég stýrivaxtahækkanir Seðlabankans því ég var eindregið þeirrar skoðunar að peningamálastefnan væri orðin of slök. En núna? Í síðustu viku kom Seðlabankinn á óvart og lækkaði lykilvexti sína um 0,5 prósentustig niður í 5,25%. Ég verð að viðurkenna að ég sá þetta ekki fyrir og ég er ekki ákafur stuðningsmaður vaxtalækkunarinnar. Að því sögðu þá hafa uppáhaldsvísar mínir varðandi peningamálastefnuna verið að færast í rétta átt, svo ég viðurkenni að minnsta kosti að dyrnar hafi opnast í hálfa gátt fyrir vaxtalækkun. Vaxtalækkun er í lagi, en hún kemur of fljótt Almennt séð vil ég líta á tvenns konar hagvísa þegar ég met peningamálastefnu. Í fyrsta lagi markaðsvísa – einkum verðbólguvæntingar – og í öðru lagi peningavísa. Ef við byrjum á verðbólguvæntingum þá er ljóst að bæði verðbólguvæntingarnar, sem við sjáum í könnun Seðlabankans á meðal markaðsaðila, og á skuldabréfamörkuðunum, hafa hækkað og eru langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans og það er einnig ljóst að markaðsaðilarnir líta ekki á verðbólgumarkmið Seðlabankans sem fyllilega trúverðugt. Hins vegar hafa verðbólguvæntingar (bæði væntingar í könnun og á mörkuðum) undanfarið nálgast 2,5%. Við erum ekki öll komin þangað enn þá, en tilhneigingin hefur verið skýr. Þetta gerir aðhaldssama peningamálastefnu síður nauðsynlega. Ef við snúum okkur að peningavísunum þá lít ég fyrst og fremst á aukið peningaframboð og hækkandi nafnvirði vergrar landsframleiðslu (VLF), sem við getum litið á sem eftirspurn í hagkerfinu sem Seðlabankinn stjórnar. Almennt hafa varla komið nein viðvörunarmerki vegna aukins peningaframboðs, en ef við lítum á nafnvirði VLF er ekki eins ljóst að aukin lausatök á peningamálastefnunni eigi rétt á sér einmitt núna. Ég hef lengi haldið því fram að síðan Már Guðmundsson varð seðlabankastjóri hafi Seðlabankinn haldið vexti nafnvirðis VLF við 4,5%, sem tryggir 2,5% verðbólgu ef vöxtur VFL að raunvirði er í kringum 2%. Það er þó ljóst að síðan 2014 hefur nafnvirði VLF vaxið hlutfallslega hraðar en þetta sjálfgefna markmið og nafnvirði VLF er í dag vel yfir því sem virðist réttlætanlegt fyrir peningalegan stöðugleika. Það er rétt að hægt hefur verulega á vexti nafnvirðis VFL á síðustu tveim ársfjórðungum, en nafnvirði VFL er greinilega enn á mjög háu stigi og Seðlabankinn ætti ekki að hunsa það. Að öllu samanlögðu er ég ekki ákafur stuðningsmaður vaxtalækkunarinnar og ég myndi sannarlega vara við frekari slökun á peningamálastefnunni. Við viljum ekki endurtaka mistök fortíðarinnar, en ef Már hefði getað sannfært mig um að þetta yrði síðasta vaxtalækkunin á meðan verðbólguvæntingar eru yfir 2,5% þá hefði hann kannski getað fengið mig til að greiða vaxtalækkun atkvæði mitt ef ég hefði verið í peningastefnunefndinni.
Mest lesið Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Sjá meira