Segir borgað með útflutningi kjötsins Sveinn Arnarsson skrifar 5. september 2016 07:00 Unnið að því að hreinsa slög í Fjallalambi á Kópaskeri. Fyrirtækið stendur ekki vel. vísir/pjetur
Fjallalamb hf. hefur óskað eftir hlutafjáraukningu í félaginu til að laga lausafjárstöðu. Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir síðustu tvö ár hafa verið gríðarlega erfið fyrir afurðastöðvar fyrir lambakjöt og að allur útflutningur sé rekinn með tapi. Fréttablaðið sagði frá því á dögunum að af rúmum tíu þúsund tonnum sem framleidd eru af kindakjöti ár hvert fari um þrjú þúsund tonn á erlenda markaði.Björn Víkingur Björnssonright„Það er offramleiðsla á landinu í dag, það er klárt að mínu mati. Einnig munu nýju búvörusamningarnir taka í burtu einu framleiðslustýringuna sem er í kerfinu og því ekki von á góðu ef áfram heldur sem horfir. Ég gæti trúað því að meðalbændur á okkar starfssvæði, sem er Öxarfjörður og Þistilfjörður, muni tapa um einni og hálfri milljón króna á þessum nýju samningum,“ segir Björn Víkingur. Frá árinu 2007 hefur framleiðsla á kindakjöti aukist. Um 60.000 fleiri dilkum var slátrað árið 2015 en árið 2006. „Það er taprekstur á öllum útflutningi á lambakjöti í ár. Á meðan krónan hefur styrkst hefur gengi breska pundsins og norsku krónunnar farið niður svo við erum að borga með útflutningi á helstu markaði okkar,“ bætir hann við.Gunnar Bragi Sveinsson„Ég ætla að leyfa mér að segja að það er fyrst og fremst verslunin sem stýrir verði til bænda á Íslandi,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðarráðherra í þingræðu í síðustu viku um lækkað afurðaverð til bænda. „Hins vegar er lambakjöt flutt út til Evrópu. Þeir markaðir eins og aðrir hafa reynst býsna erfiðir að undanförnu. Það eru nokkur atriði sem spila þar inn í. Eftirspurnin er einfaldlega önnur,“ sagði Gunnar Bragi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira