Telur að hægt sé að forgangsraða í þágu skólastarfs í borginni Höskuldur Kári Schram skrifar 7. september 2016 18:45
Halldór Halldórsson oddviti sjálfstæðismanna í borginni telur að hægt sé að draga verulega úr boðuðum niðurskurði í skólamálum með því að fresta framkvæmdum og spara á öðrum sviðum sem ekki tilheyra grunnþjónustu. Skóla og frístundasviði borgarinnar er gert að hagræða um 670 milljónir á þessu ári. Skólastjórnendur hafa gagnrýnt þetta og telja sig að óbreyttu ekki geta uppfyllt lögbundið hlutverk. Rætt var um málið á borgarstjórnarfundi í gær þar sem minnihlutinn gagnrýndi niðurskurðarkröfu meirihlutans. Sjálfstæðismenn telja að hægt sé að komast hjá þessum niðurskurði með því að breyta forgangsröðun. „Forgangsröðun þýðir það að þú velur marga kosti sem allir eru góðir en þú verður að taka einhverja út úr og skólarnir eru mikilvægasta grunnþjónustan. Við teljum að það sé hægt að spara á öðrum sviðum og nota meira í skólana,“ segir Halldór Halldórsson oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann telur að hægt sé að spara á þeim sviðum sem ekki tilheyra grunnþjónustu. „Við lögðum líka til eitt og annað varðandi fjárfestingar sem mætti fresta eða fella niður. Við töluðum um Gröndalshús, um hinn margfræga Grensásveg þar sem liggja eitthvað um 170 milljónir. Grófarhús, viðbygging við Borgarbókasafnið, sem mætti bíða. Það mun kosta eitthvað um 800 milljónir upp í milljarð þegar upp verður staðið. Þannig að við höfum alveg pening inni í kerfinu til þess að hagræða og forgangsraða,“ segir Halldór.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira