Færri senda jólakort með hefðbundnum pósti sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 7. janúar 2016 11:30 vísir/anton
Íslendingar virðast taka nokkuð virkan þátt í öllu því sem tengist jólahátíðinni, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flestir setja upp jólaskraut og jólatré og stór hluti landsmanna gefur til góðgerðarmála. Þó senda færri jólakort nú en áður. Rúmlega 92 prósent landsmanna eru með jólaseríur eða annað skraut innandyra og rífllega 68 prósent utandyra. Þá eru um 84 prósent þeirra sem könnunin náði til með jólatré en fyrir fimm árum var hlutfallið 88 prósent. Fleiri eru með gervitré, eða 53 prósent og 32 prósent með lifandi tré. Fyrir fimm árum voru fjórir af hverjum tíu með lifandi tré. Þá segjast nær 77 prósent sjá um, eða taka þátt í að elda jólamatinn á aðfangadag. Konur virðast líklegri til að taka þátt í eldamennskunni en karlar og fólk á aldrinum 30-60 ára er líklegra til að sjá um eldamennskuna en fólk yngra en 30 ára.Menntaðir ólíklegri til að vitja leiðis yfir jólin Ríflega 61 prósent fer í kirkjugarð að vitja leiðis yfir jólin. Fólk er líklegra til að vitja leiðis eftir því sem það er eldra, og þeir sem eru með háskólapróf eru ólíklegri til þess en þeir sem hafa minni menntun að baki. Rúmlega sex af hverjum tíu baka smákökur fyrir jólin en fyrir fimm árum var hlutfallið 68 prósent. Yngra fólk bakar að jafnaði frekar en eldri fólk. Nokkur breyting hefur orðið á fjölda þeirra sem senda jólakort með hefðbundnum pósti. Í ár gerðu það rúmlega 54 prósent en fyrir fimm árum var hlutfall þeirra sem sendu jólakort í pósti 74 prósent, en þá sendu fjórir af hverjum tíu rafræna jólakveðju. Konur virðast frekar senda jólakveðjur en karlar. Fólk er hins vegar líklegra til að senda jólakort í pósti eftir því sem það er eldra, og fólk búsett á landsbyggðinni líklegra til þess en íbúar höfuðborgarsvæðisins.
Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Fleiri fréttir „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Sjá meira