Meirihluti tekna Valitor erlendis í fyrsta sinn Ingvar Haraldsson skrifar 5. maí 2016 07:00 Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir árið hafa einkennst af miklum fjárfestingum. vísir/stefán
Kortafyrirtækið Valitor hagnaðist um 49 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðurinn dróst talsvert saman milli ára en hann nam 215 milljónum króna árið 2014. Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir fyrirtækið hafa farið í miklar fjárfestingar á síðasta ári. „Það hefur skemmri tími áhrif á hagnaðinn en til lengri tíma ætti það að vera jákvætt,“ segir hann. Meirihluti tekna Valitor kom til vegna starfsemi erlendis á síðasta ári í fyrsta sinn, en hlutfall erlendra tekna var 18 prósent árið 2012. Meðal þeirra verkefna sem Valitor vinnur að er félagið Iteron Ltd. á Bretlandi en Valitor bókfærði hálfs milljarðs króna tap vegna starfsemi þess á síðasta ári. Viðar segir fyrirtækið vera að stíga sín fyrstu skref og stefni á markaðssetningu hjá kaupmönnum á Bretlandi. „Við erum að byggja félagið upp frá grunni og það kostar auðvitað sitt,“ segir hann. Þjónustutekjur Valitor jukust talsvert á milli ára og námu 10,4 millörðum króna, miðað við 8,2 milljarða króna árið 2014. Á móti jukust þjónustugjöld og námu 6,7 milljörðum 2015 miðað við fjóra milljarða árið áður. Viðar segir fyrirtækið vera búið að bókfæra um 4,5 milljarða króna vegna kaupa Visa International á Visa Europe, en stefnt er að því að ganga frá þeim viðskiptum á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Arion banki á 99 prósent af hlutafé í Valitor. Eigið fé félagsins nemur 7,6 milljörðum króna, skuldir 26,8 milljörðum og eignir 34,4 milljörðum króna. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 5. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira