

Pírötum rænt
Tillagan var lögð óvænt fram og var bæði vanreifuð og illa kynnt og málið í heild var hið undarlegasta. Hún passar illa við almenn stefnumál Píratahreyfingarinnar en athyglivert er að hún passar þeim mun betur við markmið Dögunar og Lýðræðisvaktarinnar, smáflokka sem náðu ekki inn á þing í kosningunum 2013.
Alvarleikinn og mögulegar afleiðingar
Tillögur stjórnlagaráðs boðuðu algerar breytingar á stjórnarskrá landsins varðandi kosningar, Alþingi, myndun ríkisstjórnar, hlutverk forseta og svo framvegis. Auk þess var nýlegur mannréttindakafli umskrifaður en hann er meðal annars vörn borgaranna gegn ágangi stjórnvalda.
Fyrstu árin eftir samþykkt frumvarps stjórnlagaráðs í heild sinni yrðu sannkölluð rússíbanareið óvissu og áhættu. Kosið yrði eftir nýrri aðferð, ríkisstjórn mynduð eftir nýjum leiðum, Alþingi og ríkisstjórn þyrftu að starfa eftir nýjum leikreglum og nýjar stofnanir þyrfti að setja á fót. Í þeirri pólitísku, réttarfarslegu og efnahagslegu óreiðu sem skapast myndi þyrftu borgararnir að láta reyna á óharðnaðan mannréttindakafla sér til varnar hjá dómstólum sem væru starfandi í lagalegri óvissu.
Í vetur voru þrjár tillögur til umræðu í nefnd sem fyrrverandi forsætisráðherra skipaði. Þá kom vel í ljós hve gríðarlega flókin þessi mál eru og hve varasamt væri að kasta til höndunum. Þar voru þó „aðeins” þrjú ákvæði til umræðu; umhverfisvernd, auðlindir og þjóðaratkvæðagreiðslur.
Sýnt þykir að glundroðinn og áhættan sem mundi fylgja algerum umskiptum er ónauðsynleg, óskynsamleg og varasöm. Tillögur stjórnlagaráðs telja 114 ákvæði, bráðabirgðaákvæði og sérstakar greinargerðir. Óraunhæft er að ætlast til þess að kjósendur geti tekið gagnrýna og upplýsta ákvörðun um slíkan fjölda ákvæða á einu bretti. Rökin fyrir þessari aðferðafræði halda einfaldlega ekki.
Það er mikið áhyggjuefni að þrýstihópar eru komnir í þá aðstöðu að misnota beint lýðræði og þá lýðræðislegu ferla sem Píratar eru enn með í þróun innan flokksins. Fullnusta þeirra er sérstaklega aðkallandi í ljósi fylgisaukningar og þeirrar auknu ábyrgðar sem henni fylgir.
Píratar vinna ekki svona
Hið sorglega er að Píratar eru skyndilega í þeirri stöðu að vera talsmenn þess að fólk velji af eða á um öll 114 ákvæðin, burtséð frá gæðum hvers þeirra um sig. Það er ekki í samræmi við grunngildi Pírata um gagnrýna hugsun og upplýsta stefnu. Þau hafa verið hunsuð.
Rík þörf er á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins en það er óráð að breyta öllu á einu þingi þar sem áhættan fyrir íslenskt þjóðfélag næði áður óþekktum hæðum. Einnig skal hafa í huga að slík umbylting hefur þegar verið reynd eftir hrun þegar jafnvel viðraði enn betur til breytinga en hún gekk ekki eftir. Það er ekki góð stefna að þrjóskast áfram og endurtaka sömu mistök og áður, með sömu aðferðum, og búast við annarri niðurstöðu. Stefna Pírata er að vera skynsöm og láta gagnrýna umræðu varða veginn en ekki reisa hús með einu hamarshöggi.
Öfgar og oftúlkun
Því miður er jáyrði hinnar ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fór 2012, iðulega oftúlkað. Fullyrt er að ‘þjóðin hafi samþykkt nýja stjórnarskrá’ á meðan hið rétta er að ‘samþykkt var að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá’.
Landsfundurinn í Laugardalshöll og stjórnlagaráð voru merkileg félagsleg fyrirbæri og brýnt er að finna farveg fyrir hið jákvæða sem af þeim hlaust. Aðalfundur Pírata var á ákveðinn hátt vélaður til að samþykkja áðurnefnda stjórnarskrárályktun og snéri þar með mörgum grunlausum Pírötum á sveif með þeim sem hafa notað þessa viðburði til að kljúfa menn og málefni í fylkingar, stuðlað að ósætti, sundrungu og gamaldags skotgrafahernaði.
Þetta annarlega ferli hefur truflað mig ósegjanlega og eins og málið er reifað er útilokað að ég geti stutt stefnu flokksins í stjórnarskrármálinu eins og hún var samþykkt á síðasta aðalfundi. Málið er vanreifað og til þess fallið að grafa undan Pírötum.
Hafa skal í huga að fólk sem eru málsvarar grunngilda Pírata þarf gæta þess að fara eftir þeim sjálft. Minnumst þess einnig að hver sú stefna sem gengur í berhögg við Grunnstefnu Pírata ekki síst allan fyrsta kaflann eins og hann leggur sig, er hreinlega ógild.
Yfirgangur og óheflaður dónaskapur
Viðleitni mín til þess að opna umræðuna og ljá þeim flokksmönnum rödd sem hafa efasemdir hefur kostað mig ósanngjarnar ávirðingar og gríðarleg leiðindi bæði opinberlega og innan flokks. Ég hef takmarkað svigrúm til að eiga stöðugt við ærulausan áróður. Ég sinni fullri vinnu, til viðbótar við það hella upp á kaffi og skúra félagsheimili Pírata eins og komist var niðrandi að orði um þau annars ágætu störf, í þeim tilgangi að takmarka tjáningarfrelsi mitt og gera lítið úr lýðræðislegu umboði mínu innan flokksins. Þetta er út úr öllu korti og í andstöðu við allt það sem Píratar standa fyrir.
Ég átti þann kost einan að segja mig frá trúnaðarstörfum innan flokksins. Ég vona um leið að flokkurinn beri dag einn til þess gæfu að nálgast hinar fyrirhuguðu og nauðsynlegu lýðræðisumbætur á stjórnarskrá eins og Píratar myndu gera, af ábyrgð og yfirvegun, landi og þjóð til heilla.
Skoðun

Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn
Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar

Geislameðferð sem lífsbjörg
Ingibjörg Isaksen skrifar

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Stöðvum helvíti á jörðu
Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Hversu mikið er nóg?
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Til þeirra sem fagna
Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar

Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis
Elliði Vignisson skrifar

Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni
Ellen Calmon skrifar

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar