Hreinsa útblástur og framleiða koltvísýring Svavar Hávarðsson skrifar 26. apríl 2016 05:00 Kristín Vala Matthíasdóttir
HS Orka mun á næstu mánuðum setja upp tilraunastöð við orkuver fyrirtækisins í Svartsengi til að hreinsa brennisteinsvetni (H2S) úr gasi sem fellur til við nýtingu jarðvarma. HS Orka hefur skrifað undir samstarfssamning við danska hátæknirisann Haldor Topsøe um byggingu tilraunastöðvarinnar – en stöðin, sem verður fyrst sinnar tegundar, byggir á tækni og sérþekkingu danska fyrirtækisins. Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri Auðlindagarðs HS Orku, segir að eftir að stöðin hefur verið sett upp sé komin umhverfisvæn og hagkvæm lausn til þess að fjarlægja brennisteinsvetnið úr gasstraumi frá orkuverinu, minnka með því lykt og samhliða framleiða hreinan koltvísýring (CO2). „Afkastageta þessarar stöðvar er um 7.500 tonn af koltvísýringi,“ segir Kristín Vala um framleiðslugetu stöðvarinnar, en hér á landi eru í dag framleidd um 3.000 tonn af koltvísýringi og því ljóst að framboðið verður hér innanlands mun meira en hingað til. Kristín Vala segir að þegar allt er talið sé um framkvæmd að ræða sem muni kosta um 300 milljónir íslenskra króna, en rekstur tilraunastöðvarinnar og framleiðsla á koltvísýringi hefst strax í febrúar eða mars 2017, ef allt gengur að óskum. Við nýtingu á jarðvarma fellur alltaf til nokkurt magn jarðhitagastegunda, og þeirra á meðal koltvísýringur og brennisteinsvetni. Koltvísýringurinn er verðmæt afurð og nýtist við margs konar starfsemi. „Möguleika til nýtingar á koltvísýringi er að finna í iðnaðar- og matvælaframleiðslu, garðyrkju, á sjúkrahúsum svo fátt eitt sé talið,“ segir Kristín en útflutningur á koltvísýringi kemur ekki til greina í augnablikinu. Aðferð Haldor Topsøe fjarlægir brennisteinsvetni úr gasinu sem verður dælt aftur niður í jörðina í uppleystu formi og kemur til með að hafa jákvæð áhrif á rekstur niðurdælingar við Svartsengi. Það fellur að markmiðum HS Orku um að nýta allt sem til fellur við nýtingu þeirrar auðlindar sem fyrirtækið nýtir og er treyst fyrir, segir Kristín Vala. „Þetta er jákvætt skref fyrir okkur og fellur vel að markmiðum Auðlindagarðsins, samfélags án sóunar og er viðbót við núverandi fjölþætta starfsemi í Auðlindagarðinum.“ Sex orkuver í SvartsengiSvartsengisvirkjun stendur á hrauni sem rann árið 1226 og heitir Illahraun. Boranir eftir gufu á Svartsengissvæðinu hófust árið 1971. Strax við virkjun gufuhola fór skiljusjórinn að mynda affallslón sem í dag er hið fræga Bláa lón. Vatni var hleypt á fyrstu húsin í Grindavík árið 1976 og ári síðar, 1977, á fyrstu húsin í Njarðvík. Orkuverin í Svartsengi hafa verið byggð upp í áföngum. Það fyrsta (orkuver 1) var byggt á árunum 1977-1979 og það síðasta (orkuver 6) var byggt á árunum 2006-2008. Framleiðslugeta orkuversins í Svartsengi er um 75 MW í raforku og um 150 MW í varma.
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Sjá meira