Sendinefnd til bjargar markaði í Nígeríu Svavar Hávarðsson skrifar 2. apríl 2016 07:00 Þorsteinn Már Baldvinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Jens Garðar Helgason á fundi SFS í gær. vísir/stefán
Grafalvarleg staða er uppi á mörkuðum Íslendinga í Nígeríu vegna gjaldeyrisskorts og takmarkana þarlendra stjórnvalda á notkun gjaldeyris. Þá eru blikur á lofti þar sem ekki hefur samist um veiðar úr þremur mikilvægum deilistofnum. Þetta kemur fram í máli Jens Garðars Helgasonar, formanns Sambands fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), í nýrri ársskýrslu samtakanna. Jens Garðar segir að SFS hafi átt gott samstarf við þau fyrirtæki sem selja afurðir sínar til Nígeríu og einnig fundað með fulltrúum utanríkisráðuneytisins, Seðlabanka Íslands og olíufélaganna. „Farið hefur verið yfir stöðu mála og kostir í stöðunni skoðaðir, þar með taldir möguleg vöruskipti. Í undirbúningi er að íslensk sendinefnd undir forystu utanríkisráðherra fari til Nígeríu og þess verði freistað að koma aftur á viðskiptum á milli landanna.“ Jens Garðar gerir einnig að umtalsefni að hvorki gengur né rekur í viðræðum um sameiginlega fiskistofna, eða deilistofna, sem nýttir eru af Íslandi, Evrópusambandsríkjum, Noregi, Færeyjum og Rússlandi [síld]. Á það við um makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna. Eins og þekkt er hefur ekkert þokast í samkomulagsátt. „Staðan í strandríkjaviðræðunum er mjög alvarleg og þjónar ekki hagsmunum Íslands, né annarra veiðiríkja, til lengri tíma litið vegna augljósrar ofveiði auk þess sem orðspor þessara veiðiþjóða er í húfi sem og geta þeirra til að axla þá ábyrgð sem fylgir réttindum þeirra til nýtingar þessara sameiginlegu stofna,“ segir Jens Garðar. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra gerði einmitt þetta að umtalsefni í ræðu sinni á ráðstefnu SFS í gær, þar sem vaxtartækifæri íslensks atvinnulífs voru til umræðu. „Engir samningar eru í gildi milli þjóða um síld, makríl og kolmunna eins og sakir standa. Afleiðing þessa er að það er regla, frekar en undantekning, að stofnarnir eru veiddir umfram ráðgjöf – líklega um 15 til 30 prósent,“ sagði Sigurður og bætti við að umframveiði á úthafskarfa á Reykjaneshrygg væri yfir 300 prósent. Öllum er ljóst hvað gerist ef ekki verður breyting á, sagði Sigurður Ingi og bætti við: „Þetta er í raun svartur blettur á fiskveiðistjórnun allra þessara þjóða.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira