Gleraugnasali líkir ástandinu á Hverfisgötu við góða grínmynd Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. september 2016 07:00 Öngþveiti varð í miðbænum 27. júlí í sumar þegar verktakar lokuðu Hverfisgötu beggja vegna Vatnsstígs svo bílar lentu í sjálheldu.. mynd/anna þóra björnsdóttir „
Við erum ekkert að tala um að breyta allri götunni heldur bara að komið verði til móts við fólkið þannig að allir verði velkomnir hingað,“ segir Anna Þóra Björnsdóttir, eigandi gleraugnaverslunarinnar Sjáðu á Hverfisgötu. Anna hefur ásamt eiginmanni sínum rekið verslunina á Hverfisgötu í fjögur ár. Allan þann tíma segir Anna að staðið hafi yfir breytingar á götunni. „Við erum alls ekki óánægð með að það hafi verið farið í framkvæmdir á götunni. En það er búið að vera rosalega slæmt aðgengi að versluninni í fjögur ár,“ segir Anna sem kveður ekki bæta úr skák að upplýsingar um þau verkefni sem ráðist er í séu aldrei veittar fyrirfram og götulokanir séu tíðar. „Maður heyrir bara hingað og þangað hvernig þetta á að vera. Svo benda allir hver á annan,“ segir Anna. Stór hópur af viðskiptavinum hennar sé eldri Reykvíkingar sem vilji versla í miðbænum en komist ekki. Strætó stansi ekki nema á Hlemmi, Lækjartorgi og við Hörpu og við breytinguna hafi bílastæðum við götuna fækkað um meira en fimmtíu. „Þeir sem koma á bílum eiga að leggja í bílastæðahúsunum en það var allt sundurgrafið við bílastæðahúsið gegnt Þjóðleikhúsinu þannig að gamalt fólk með göngugrindur eða fólk með mæður sínar í hjólastól gat ekki farið þaðan,“ segir Anna. Enginn treysti sér heldur til að leggja í bílastæðahúsinu á Vitatorgi. „Allir útigangsmennirnir eru þar og þar er búið að pissa og kúka allt út. Þegar ég segi áttatíu ára gömlum, sætum konum að leggja þar koma þær í áfalli til mín. Það vill enginn fá einhvern blindfullan Rússa öskrandi á sig,“ segir gleraugnasalinn.Anna Þóra Björnsdóttir, verslunarmaður í Sjáðu.vísir/valliÞá nefnir Anna mikil vandkvæði við vörumóttöku því hvergi sé hægt að stoppa. Hún bendir á að við hlið hennar verslunar hafi verið og sé vinsæll indverskur veitingastaður til 23 ára. Þar sé mikið selt út af veislumat. „Starfsfólkið er að hlaupa hér um í hálku niður á Skúlagötu með hrísgrjón í pottum til að koma í bíl. Svo þegar það er komið hótel í hvert einasta hús og fimmtíu kínverskar fjölskyldur á bílaleigubílum eru líka í þessu stappi þá er þetta auðvitað eins og mjög góð grínmynd,“ segir Anna sem kveðst litlar undirtektir hafa fengið hjá borginni. „Ég er búin að tala við alla og manni er bara ekki svarað. Við fengum þó leiðindabréf þar sem sagt er að búið sé að gera þessa götu fyrir milljarð og að við séum að fara fram á að hún verði endurhönnuð. Það er ekki rétt. Ef maður er að byggja sér einbýlishús og raðar inn í það og finnur svo að það er ekki alveg að ganga þá bara breytir maður,“ segir Anna. Svigrúm til breytinga sér Anna í að gangstétt er báðum megin við hjólastíg við götuna. „Það er aldrei neinn sem labbar á gangstéttinni sem er nær götunni. Það má alveg setja stæði þar sem er merkt fyrir hjólastóla og vöruafgreiðslu. Ég er með fólk sem kemur með Ferðaþjónustu fatlaðra og hvar á það að stoppa? Þetta er vandamál sem þarf að leysa án þess að vera alltaf með einhvern skæting.“ Fréttin birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Sjá meira