Viðskipti innlent

Landsbankinn hagnast um 3,3 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Afkoma Landsbankans var jákvæð um 3,3 milljarða króna eftir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins 2016 en hagnaður á sama tímabili árið 2015 nam 6,4 milljörðum króna.

Rekstrartekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 11,5 milljörðum króna samanborið við 14,7 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Launakostnaður hækkaði í takti við ákvæði nýrra kjarasamninga en á hinn bóginn lækkaði annar rekstrarkostnaður þannig að heildarrekstrarkostnaður bankans lækkaði um 0,5 prósent miðað við sama tímabil 2015, segir í tilkynningu.

Vaxtamunur eigna og skulda nam 1,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2016 en var 2,0 prósent á sama tímabili árið áður. Útlán Landsbankans jukust miðað við sama tímabil í fyrra, þrátt fyrir mikla og vaxandi samkeppni á lánamarkaði. Einnig hækkuðu þjónustutekjur vegna vaxandi viðskipta.

Vanskilahlutfall heldur áfram að lækka og var 1,7 prósent á 1. ársfjórðungi, samanborið við 2,3 prósent á sama tímabili í fyrra.

Kostnaðarhlutfall hækkaði sem skýrist einkum af lægri tekjum af verðbréfum. Kostnaðarhlutfall fyrstu þrjá mánuði ársins er 55,8 prósent samanborið við 48 prósent á sama tímabili árið áður.

Eigið fé Landsbankans var 267,8 milljarðar króna 31. mars síðastliðinn og eiginfjárhlutfallið var 31,2 prósent. Landsbankinn greiðir á þessu ári 28,5 milljarða króna í arð í tveimur greiðslum, annars vegar 20. apríl og hins vegar 21. september og gætir áhrifa arðgreiðslunnar því ekki í þessu uppgjöri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×