Upplausn hjá Félagi kvenna í lögmennsku snærós sindradóttir skrifar 27. ágúst 2016 07:00 Skiptar skoðanir eru á gagnrýni Kristrúnar Elsu Harðardóttur á nýjar tillögur Lögmannafélags Íslands um breytingu á lögmannalögum.
Meirihluti stjórnar Félags kvenna í lögmennsku hefur sagt sig úr stjórn eða stefnir á úrsögn í tengslum við gagnrýni formanns félagsins á nýjar tillögur Lögmannafélags Íslands um breytingu á lögmannalögum. Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um breytingarnar en þær miða að því að herða skilyrði héraðsdómslögmanna til að fá málflutningsréttindi í Landsrétti, nýja millidómsstiginu, og enn frekar til að fá málflutningsréttindi í Hæstarétti. Kristrún Elsa Harðardóttir, formaður Félags kvenna í lögmennsku, gagnrýndi þessar breytingar í frétt Fréttablaðsins og víðar og sagði að tillögurnar litu út fyrir að eiga að tryggja eldri lögmönnum mál í Hæstarétti til lengri tíma. Í viðtali við RÚV sagði Kristrún að Lögmannafélag Íslands væri og hefði verið karlaveldi. Í tilkynningu frá félaginu á Facebook harmar félagið svo ummæli formanns Lögmannafélags Íslands í hádegisfréttum RÚV um málið. Tilkynningunni mætti nokkur mótstaða kvenkyns lögmanna sem töldu að félagið gæti ekki fullyrt fyrir hönd allra félagsmanna því ekki hefði verið haldinn fundur um málið. Nú hafa tveir aðalmenn og tveir varamenn sagt sig úr stjórninni. Fréttablaðið hefur sömuleiðis heimildir fyrir því að einn aðalmaður í viðbót hyggist hætta þegar ný stjórn verður kosin. Búið er að auglýsa eftir framboðum þriggja aðalmanna og tveggja varamanna. Alls sitja fimm aðalmenn og tveir varamenn í stjórninni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ástæða úrsagnarinnar meðal annars ofangreind útskýring en gagnrýni formannsins í fjölmiðlum hafi sett punktinn yfir i-ið í langvarandi óánægju. Formaðurinn njóti ekki trausts þeirra sem eftir sitja. „Ég fékk tölvupóst frá þeim öllum í sitthvoru lagi þar sem mismunandi ástæður eru gefnar fyrir [úrsögninni]. Ákvörðun um að gagnrýna þessar tillögur hjá lögmannafélaginu var tekin á stjórnarfundi þar sem meirihluti stjórnar mætti og samþykkti hana. Þær konur sem hafa sagt sig úr stjórninni voru ekki mættar á þann fund og hafa þá verið ósáttar við þá ákvörðun. Sú gagnrýni kom ekki fram fyrr en löngu seinna.“ Kristrún segir að fyrir stjórnarfundinn hafi málið verið rætt í tölvupóstsamskiptum og því hafi niðurstaðan ekki átt að koma þeim á óvart. „Lögmannafélagið er gamalt og gróið félag. Þegar maður potar í eitthvað sem er gamalt og gróið þá hlaupa einhverjir í burtu og eru hræddir við mótlætið,“ segir Kristrún. Kristrún segir að ekki sé komin fram krafa um að kosið verði um nýjan formann á félagsfundinum. Hún hyggist halda áfram sem formaður.
Tengdar fréttir Tillögur sniðnar að eldri lögmönnum Breyting á lögmannalögum getur lengt tímann fyrir héraðsdómslögmenn til að fá réttindi til að flytja mál í Hæstarétti um allt að þrjú ár. Formaður félags kvenna í lögmennsku segir tillögurnar metnaðarlausar og í ósamræmi við 23. ágúst 2016 07:00 Vilja einungis prófmál í Landsrétti Lagt er til að engin krafa verði um prófmál í Hæstarétti. 19. ágúst 2016 07:00 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira
Tillögur sniðnar að eldri lögmönnum Breyting á lögmannalögum getur lengt tímann fyrir héraðsdómslögmenn til að fá réttindi til að flytja mál í Hæstarétti um allt að þrjú ár. Formaður félags kvenna í lögmennsku segir tillögurnar metnaðarlausar og í ósamræmi við 23. ágúst 2016 07:00
Vilja einungis prófmál í Landsrétti Lagt er til að engin krafa verði um prófmál í Hæstarétti. 19. ágúst 2016 07:00