Viðskipti innlent

Verð á eðalmálmum hefur rokið upp

Sunn Gísladóttir skrifar
Verð á únsu af silfri náði upp í sautján dollara í gær og hefur ekki verið hærra í tíu mánuði. Fréttablaðið/Getty
Verð á únsu af silfri náði upp í sautján dollara í gær og hefur ekki verið hærra í tíu mánuði. Fréttablaðið/Getty
Verð á silfri rauk upp í gær og var það hæsta sem mælst hefur í tíu mánuði. Mest hækkaði silfur um fimm prósent og seldist únsa af silfri á um 17 dollara í gær, jafnvirði 2.100 íslenskra króna.

Uppsveiflan í silfri er sambærileg við uppsveifluna í gulli í marsmánuði. Í byrjun apríl hafði gull hækkað um 13 prósent á árinu en silfur hafði einungis hækkað um átta prósent. Á undanförnum vikum hafa vinsældir silfurs færst í aukana og munar nú minna á verði á málmunum tveimur.

Í þrjátíu ár hefur gull ekki hækkað meira en það gerði á fyrsta ársfjórðungi 2016. Talið er að fjárfestar hafi leitað í öryggi gullsins í ljósi sveiflukenndra hlutabréfamarkaða og veikara gengi dollara. Nú virðast fjárfestar þó vera að beina sjónum sínum að silfri. – sg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×