Í upphafi leiksins fóru nokkur skot forgörðum hjá báðum liðum og var eins og það væri slím á boltanum. Leikmenn beggja liða unnu sig hægt og rólega í takt við leikinn og fóru að setja fínar körfur niður.
Snæfellingar voru kannski einu skrefi á undan en Keflvíkingar aldrei langt undan. Eftir fyrsta leikhlutann var staðan 16-13 fyrir Snæfell.
Í öðrum leikhluta fóru leikmenn Snæfells að spila harðari vörn og réðu heimamenn ekki við það. Snæfellingar fóru að setja niður fleiri skot og þá sérstaklega Bryndís Guðmundsdóttir, fyrrverandi leikmaður Keflvíkinga, og leikmaður Snæfells í dag. Hún fór mikinn í leikhlutanum og Keflvíkingar réðu ekkert við hana. Snæfell jók rólega við forskot sitt og var staðan í hálfleik, 33-18, og gestirnir fimmtán stigum yfir.
Keflavík gerði fyrstu fimm stig síðari hálfleiksins og breytti liðið stöðunni strax í 23-33. Snæfell svarði þá strax í sömu mynd og setti liðið strax fimm stig í andlitið á heimamönnum. Þær bættu um betur og varð fljótlega munurinn tuttugu stig, 43-23. Fyrir lokaleikhlutann munaði 18 á stigum á liðunum, 51-33, og Keflavík þurfti kraftaverk.
Í fjórða leikhlutanum hélt sama sagan áfram. Keflavík réð ekki við pressuvörn Snæfells og hver einasta sókn þeirra var mun erfiðari en hjá gestunum. Keflavík sýndi samt mikla baráttu undir lok leiksins og maður sá vel að liðið getur spilað körfubolta. Leiknum lauk því með auðveldum sigur Snæfells, 61-52. Liðið er því enn í efsta sæti deildarinnar með 28.
Ingi Þór: Slökuðum full mikið á

„Við slökuðum full mikið á undir lokin. Mér fannst hugafarið bara ekki nægilega gott hjá stelpunum, ekki þannig að við ætluðum að berjast á fullu.“
Hann segist aldrei hafa verið hræddur um að tapa þessum leik.
„Ég vil samt fá meiri ákefð frá mínum leikmönnum. Leikurinn er fjörutíu mínútur og við eigum að spila hverja einustu sekúndu í leiknum.“
Sverrir Þór: Okkur var fyrirmunað að skora

„Það stafaði ekki af því að við vorum að fá svo svakalega vörn á okkur en okkur var bara fyrirmunað að skora. Við erum að brenna af fríum sniðskotum og fleira.“
Sverrir segir að skotnýting liðsins hafi verið afleidd í leiknum í dag.
„Það var ástæðan fyrir þessari forystu í hálfleik. Í síðari hálfleiknum byrjum við af krafti en fljótlega ná þær að fara með þetta aftur upp í tuttugu.“
Hann segist vera með ánægður með þær stelpur sem komu inn af bekknum undir lokin.
Bryndís: Alltaf gott að spila hér

„Ég er náttúrulega búin að spila hér í mörg ár og þekki þetta hús vel. Góður fyrri hálfleikur lagði grunninn af þessum sigri hjá okkur í dag.“
Bryndís segir að þá hafi liðið spilað feikilega góða vörn og góðan sóknarleik.
„Við héldum síðan að þetta væri bara komið í síðari hálfleik og hættum bara. Maður getur aldrei gert það á móti Keflavík.“
Bein lýsing: Keflavík - Snæfell