Með hugarfar sigurvegara? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar 6. júlí 2016 11:00 „Uppbygging aðstöðu, þjálfun og menntun er banvæn blanda fyrir árangur.“ Þetta sagði okkar ástkæri Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu, m.a. á aðalfundi SAF í mars. Sigurvegari trúir því að með réttri þjálfun, uppbyggingu og góðum undirbúningi sé allt mögulegt. Það þurfa allir að líta í eigin barm til að svara því hvort þetta hugarfar sé ráðandi, ekki benda á næsta mann heldur hugsa: Hvað get ég gert í dag til að efla mig enn frekar? Eitt er víst að verkefnin eru næg og þar af leiðandi endalaus tækifæri, en við verðum að vera tilbúin til að eiga möguleika á að nýta þau sem best. Að vinna að stöðugum úrbótum í rekstri og koma auga á vannýtt tækifæri krefst þjálfunar og tíma. Þessu ætlar Íslenski ferðaklasinn ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands og öflugum bakhjörlum að svara og bjóða stjórnendum í starfandi ferðaþjónustufyrirtækjum að taka þátt í verkefni á landsvísu sem nefnist Ratsjáin og hefur göngu sína á haustmánuðum. Í verkefninu gefst stjórnendum kostur á að staldra við og rýna í rekstur sinn, koma auga á tækifæri til vöruþróunar, hámörkunar á arðsemi, innleiðingar hönnunarhugsunar í starfsemina ásamt öllum þeim fjölmörgu atriðum sem rekstur ferðaþjónustufyrirtækis hefur í för með sér á eins miklum vaxtatímum og við upplifum nú. Svæðisbundin þróun er eitt af stóru verkefnunum í ferðaþjónustu. Betri dreifing ferðamanna er oft til umræðu en auðvitað gerir það enginn beint, það er hinsvegar hægt að dreifa fjárfestingum og þannig er hægt að dreifa álagi. Með framlagi úr framkvæmdasjóðum, flugþróunarsjóði og fjárfestum sem líta á það sem tækifæri að nýta auðlindir sem víðast þá náum við betri stýringu, sú vegferð er hafin en hún tekur auðvitað tíma. Vegvísir ferðaþjónustunnar er metnaðarfullt plagg unnið í sameiningu af stjórnvöldum og atvinnugreininni sem segir til um núverandi stöðu og aðgerðir til framtíðar. Að stilla saman grunnþætti opinberra aðila og síðan fyrirtækja sem eru á fljúgandi siglingu í þróun og uppbyggingu er ákveðin kúnst. Það er eðli þróunar að hún tekur á og ekkert óeðlilegt við titring hér og þar, mikilvægast er samt að staðna ekki í niðurrifi og pirringi heldur takast á við næstu verkefni sem bíða, samstíga. Stöndum saman sem eitt eru skilaboð Íslenska ferðaklasans – höfum trú, staðfestu, og styrk til að halda ferðaþjónustu áfram sem þeirri mikilvægu efnahagslegu stoð sem hún er í íslensku samfélagi, ekki bara út árið eða það næsta, heldur til frambúðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Skoðun Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar