Frumbernskan áhrifameiri en áður var talið Una Sighvatsdóttir skrifar 28. ágúst 2016 19:45
Fæstir eiga nokkrar minningar af lífinu fyrir tveggja ára aldur, en rannsóknir leiða sífellt betur í ljóst að þetta fyrsta tímabil mannsævinnar leggur grunninn að því sem koma skal og þar skiptir tengslamyndun við foreldra lykilmáli. Bresk stjórnvöld vinna nú að því að innleiða aukna geðheilbrigðisþjónustu við foreldra ungbarna, en á Íslandi er sambærileg þjónusta af skornum skammti og ekki á fjárlögum. Dr. Amanda Jones er sérfræðingur hjá bresku heilbrigðisþjónustunni og var fenginn sem ráðgjafi ríkisstjórnar Bretlands við að innleiða nýja stefnuna, þar sem sjónum er beint að geðheilbrigði foreldra strax frá fyrstu stigum meðgöngu.Heilinn þroskast mikið í frumbernsku „Fyrstu mótunarár barnsins er þegar það lærir samskipti, finnur að það sé metið og lærir sjálft að eiga samskipti. Heilinn tekur út afa mikilvægan þroska á þessum fyrstu árum æviskeiðs barnsins," segir Amanda. „Ef barn er vanrækt, verður fyrir áfalli eða er misnotað með einhverjum hætti, eða ef móðirin á við andleg veikindi að stríða og verður í kjölfarið mjög veik, þá fer barnið óhjákvæmilega á mis við það flókna, andlega öryggi sem það þarf á að halda."Andleg veikindi þróast oft á meðgöngu eða eftir fæðingu Rannsóknir sýna að allt að 20% kvenna þróa með sér andleg veikindi á meðgöngu eða fyrstu mánuðina eftir fæðingu en allt að helmingur þeirra er aldrei greindur og fær því enga hjálp, sem getur haft langvarandi áhrif á fjölskyldulífið og á barnið sjálft „Það er nógu erfitt að annast barn hafi maður flensu, líkamlega flensu. Stríði móðir við andleg veikindi og þarf um leið að annast ungbarn segir sig sjálft að það er afar erfitt," segir Amanda.Afleiddur kostnaður milljarðar á ári vegna seinni tíma vandamála Ný skýrsla frá London School of Economics kortleggur efnahagslegar afleiðingar af andlegum veikindum móður án inngrips á þessum mótunartíma barnsins og er þar áætlað að vanræksla við þennan málaflokk kosti breskt samfélag yfir 8 milljarða punda á hverju ári. Sá kostnaður kemur að mestu til vegna vandamála sem barnið verður fyrir síðar á ævinni. Yfirfært á Ísland má ætla að samfélagslegur kostnaður hér nemi 7 milljörðum króna á ári.Bretar setja fordæmið Bresk stjórnvöld hafa brugðist við skýrslunni með því að fjárfesta í aukinni geðheilbrigðisþjónustu við foreldra ungbarna. „Það er brýnt að grípa snemma í taumana. Og það fer eftir því hvar við setjum viðmiðunarmörkin, en ef við miðum þau við tímabilið frá getnaði og fyrstu ár lífsins þá er augljóst að við þurfum að breyta því hvernig við högum okkar heilbrigðisþjónustu," segir Amanda. Hér á landi veita Landspítalinn og Miðstöð foreldra og barna geðhjálp fyrir foreldra ungbarna en þjónustan er takmörkuð og ekki á föstum fjárlögum. Amanda er hér á landi í þeirra boði til að ræða við íslenska ráðamenn um hvernig innleiða mætti breska módelið á Íslandi.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira