Húsnæðismál í Reykjavík Einar Jónsson skrifar 13. september 2016 07:00 Í „markaðskerfi“ eru íbúðir verðlagðar eftir aðstæðum með betur settu kaupendurna/leigjendurna í huga og kaupenda/leigjendahópurinn er síðan „víkkaður út“ með opinberu styrkja- og bótakerfi. Sérstakt álag kemur á vinsæla staði. Þegar vel árar og í rýmilegu styrkja- og bótakerfi skara ýmsir eld að eigin köku, s.s. seljandinn/byggingaraðilinn, lánveitandinn, leigusalinn og jafnvel launagreiðandinn með lægri laun en ella.Íbúðaöryggi er kjarninn Íbúðaöryggi er grundvallaratriði, þ.e. að sá sem efnir skyldur sínar geti búið í íbúð sinni svo lengi sem hann kýs. Þetta íbúðaöryggi er einungis til staðar í eignaríbúðum. Í öðrum tilfellum er íbúðaöryggi ekki til staðar og þá hvað öryggið varðar er ekki hægt að tala um raunhæfan valkost milli þess að eiga íbúð eða leigja íbúð. Íbúðaöryggi skýrir fjölda eignaríbúða hérlendis en að auki eru íbúðaeigendur að greiða í „eigin vasa“ og njóta tiltölulega öruggrar fjárfestingar. Húsaleigusamningar leigufélaga eru jafnan uppsegjanlegir og leigufélög geta selt íbúðir sínar út úr kerfinu. Þá geta öll félög og fyrirtæki, s.s. leigufélög, húsnæðissamvinnufélög og sjálfseignarstofnanir, sem best farið á hausinn og íbúar þar með glatað húsnæði sínu þrátt fyrir að þeir hafi efnt skyldur sínar fullkomlega. Íbúðir á vegum sveitarfélaga ættu að geta veitt íbúðaöryggi jafnfætis eignaríbúðum.Markaðsverð íbúða Sagan sýnir að hagstæðari lán en áður leiða til hækkunar á íbúðaverði. Betri lánakjör eins og lægri vextir og hærra lánshlutfall eru þá í raun til tjóns fyrir íbúðakaupendur. Hagkvæmari byggingarhættir og t.d. ódýrari lóðir, styrkir og niðurgreiðsla, skila sér heldur ekki til kaupenda í söluverði undir markaðsverði á almennum markaði heldur eingöngu í afmörkuðum kerfum eða til þess sem byggir sjálfur sitt eigið húsnæði. Annars er markaðsverðið ráðandi í íbúðaviðskiptum hvaða öfl sem þar búa að baki á hverjum tíma s.s. spákaupmennska eða takmörk á öðrum fjárfestingum. Markaðsverð gæti einkum lækkað eða staðið í stað þegar framboð íbúða er umfram eftirspurn.Notendur Greina má notendur í þrjá hópa:1. Þá verst settu sem búa við þær aðstæður að hafa ekki fjárhagslega getu til öflunar húsnæðis á eigin forsendum.2. Þá sem eru vel settir og þurfa engan stuðning, sem dæmi fólk sem hefur greiðslugetu til að kaupa húsnæði fyrir kr. 50 millj.+3. Þá sem þurfa einhvern stuðning, jafnvel tímabundinn, til öflunar húsnæðis. Borgin hefur lögbundnar skyldur gagnvart fyrsta hópnum. Það er eðlileg krafa að borgin byggi nægilegan fjölda venjulegra fjölskylduíbúða til að svara þörfinni. Markaðurinn virðist svara þörfum annars hópsins með því að þokkalegt framboð er af „dýrum“ íbúðum og íbúðum fyrir dável efnaða eldri borgara.Kaupleiguíbúðir Þriðji hópurinn er sívaxandi og er sá sem þarfnast úrlausnar. Þar þarf borgin að koma sterk inn í dæmið. Í þessum hópi eru einkum fyrstu kaupendur, gjarnan fólk úr námi, sem hefur takmörkuð fjárráð. Til að stuðla að lausn vanda þessa hóps sýnast kaupleiguíbúðir gagnast best þ.e. hagkvæmar venjulegar fjölskylduíbúðir á vegum borgarinnar þar sem jafnvel hluti af leigugreiðslum nýttist upp í útborgun þegar kaupréttur verður virkur. Þar sem þetta kerfi er afmarkað frá almenna markaðinum þá gætu hagstæðir byggingarhættir og kjör skilað sér í lægri húsaleigu og kaupleigutaki ætti að búa við íbúðaöryggi, þ.e. hann gæti nýtt íbúð sína svo lengi sem hann kýs og efnir skyldur sínar. Öflugt virkt kaupleigukerfi er raunhæfur stuðningur til íbúðaöflunar. Útfærslur gætu verið áþekkar og þekktar eru frá fyrri tíma en einnig gætu persónubundnari útfærslur komið til álita, jafnvel á landsvísu með aðkomu Íbúðalánasjóðs.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir Skoðun Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna Einar Hugi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Eldra fólk, þolendum ofbeldis oft ekki trúað Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Tölfræði og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna Einar Hugi Bjarnason skrifar Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun