Stefán Kjærnested þarf að greiða milljónirnar fimmtíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. september 2015 16:40 Stefán Kjærnested var til umfjöllunar í Brestum síðastlðinn vetur vegna húsnæðis sem hann er með í útleigu. Vísir
Stefán Kjærnested þarf að greiða Landsbankanum 50 milljónir króna. Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember síðastliðnum. Málið er komið til vegna sjálfskuldarábyrgðar er Stefán tókst á hendur gagnvart Landsbanka Íslands hf. vegna láns bankans til Húsaleigu ehf. að upphæð 80 milljónum króna. Félagið var í eigu Stefáns en það var úrskurðað gjaldþrota í febrúar.Lánið var svokallað fjölmyntalán til fimm ára og sagði í lánssamningi, sem undirritaður var 30. ágúst 2007, að lánið væri veitt í eftirgreindum myntum og hlutföllum: CHF 70% og JPY 30%. Lánið átti að greiðast með 60 mánaðarlegum afborgunum með lokagjalddaga 10. september 2012.Sjá einnig:Okrað á Pólverjum sem bjuggu sjö saman í íbúðVörn Stefáns í málinu snéri að því að krafa bankans yrði látin niður falla vegna fyrningar, að öllu leyti eða hluta, enda reiknist fyrningarfrestur krafna sem stofnist vegna vanefnda frá þeim degi þegar samningur sé vanefndur, en ekki hafi verið greitt af kröfu stefnanda síðan í september 2008 og almennur frestur kröfuréttinda sé fjögur ár. Fram kemur einnig í vörn Stefáns að rekstur fyrirtækisins Húsaleiga ehf. hafi hrunið í október 2008 og þá hafi hann orðið eignalaus. Stefán hafi því ekki haft neitt svigrúm til að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt sjálfskuldarábyrgðinni. Því fór hann fram á það að verða sýknaður af kröfu Landsbankans. Á það féllust hvorki dómarar í héraði né Hæstarétti.Dóm Hæstaréttar má lesa hér.Í apríl 2007 hótaði Stefán því að fara í mál við Ísland í dagvegna umfjöllunar um aðbúnað erlendra verkamanna hér á landi og leiguhúsnæði sem þeir bjuggu í á vegum Húsaleigu ehf.Var skorað á ritstjóra Íslands í dag að hætta áframhaldandi umfjöllun um Húsaleigu ehf og forsvarsmenn til að baka sér ekki auknar refs- og skaðabótakröfur í fyrirhuguðu dómsmáli. Dómsmálið var aldrei höfðað.
Tengdar fréttir Stefán dæmdur til að greiða Landsbankanum 50 milljónir Stefán Kjærnested var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Landsbankanum 50 milljónir króna. 20. nóvember 2014 15:28 Fátækrahverfin í Reykjavík: „Látið fólk vita af þessu“ Í næsta þætti Bresta verður skyggnst bakvið tjöldin í byggingum í Kópavogi og Hafnarfirði þar sem stórir hópar fólks búa í atvinnu- og iðnaðarhúsnæðum. 23. nóvember 2014 22:30 Stefán Kjærnested: „Ég braut ekki lög“ Vísir fer yfir sögu Stefáns Kjærnested sem var til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Brestir í gær. Stefán hefur áður verið til umfjöllunnar í fjölmiðlum í tengslum við slæman aðbúnað þeirra sem leigja hjá honum herbergi. 25. nóvember 2014 12:38 Fátækrahverfin í Reykjavík: "Þetta var hræðilegt“ Húsverðir reyndu að koma í veg fyrir að aðstaðan yrði skoðuð. 24. nóvember 2014 21:16 Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira
Stefán dæmdur til að greiða Landsbankanum 50 milljónir Stefán Kjærnested var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Landsbankanum 50 milljónir króna. 20. nóvember 2014 15:28
Fátækrahverfin í Reykjavík: „Látið fólk vita af þessu“ Í næsta þætti Bresta verður skyggnst bakvið tjöldin í byggingum í Kópavogi og Hafnarfirði þar sem stórir hópar fólks búa í atvinnu- og iðnaðarhúsnæðum. 23. nóvember 2014 22:30
Stefán Kjærnested: „Ég braut ekki lög“ Vísir fer yfir sögu Stefáns Kjærnested sem var til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Brestir í gær. Stefán hefur áður verið til umfjöllunnar í fjölmiðlum í tengslum við slæman aðbúnað þeirra sem leigja hjá honum herbergi. 25. nóvember 2014 12:38
Fátækrahverfin í Reykjavík: "Þetta var hræðilegt“ Húsverðir reyndu að koma í veg fyrir að aðstaðan yrði skoðuð. 24. nóvember 2014 21:16