Íslenskar kvikmyndir gerðu það gott á árinu Stefán Árni Pálsson skrifar 7. janúar 2015 13:00 Hera Hilmarsdóttir í Vonarstræti vísir
Aðsóknartekjur í kvikmyndahúsum árið 2014 voru nokkurn veginn á pari miðað við árið 2013 en aðsókn dróst örlítið saman en þetta kemur fram í tilkynningu frá FRÍSK, Félagi rétthafa í sjónvarps og kvikmyndaiðnaði. Þar kemur fram að árið hafi verið gott fyrir íslenskar kvikmyndir. Aðsóknartekjur voru kr. 1.485.618.475 sem er lækkun upp á 0,4 prósent - eða rúmlega sex milljónir króna, miðað við tekjur á árinu 2013. Gestir kvikmyndahúsa árið 2014 voru 2,3 prósent færri en árið 2013, eða 1.344.569 manns árið 2014 miðað við 1.375.723 á árinu 2013. Þeim sem sækja kvikmyndahús hefur almennt farið fækkandi síðustu ár, en ef til vill má skýra fækkun gesta á síðasta ári með því að HM í knattspyrnu fór fram á árinu, en vegna þess ákváðu bandarísku kvikmyndastúdíóin að gefa út færri stórar myndir en ella síðasta sumar. Meðalverð á bíómiða var um 1.105 kr., sem er innan við tveggja prósenta hækkun frá árinu á undan. Hækkun á meðalverði bíómiða og hlutfallsleg minni breyting á tekjum á móti aðsókn skýrist að miklu leyti af fjölda íslenskra kvikmynda sem frumsýndar voru árið 2014, en íslenskar kvikmyndir eru með hærra miðaverð en erlendar myndir. Einnig dró úr aðsókn á kvikmyndir sem voru sýndar í þrívídd og eru með hærra miðaverð. Meðalverð bíómiða á Íslandi er sambærilegt við meðalverð bíómiða í Bandaríkjunum (áætlað að lágmarki 8,15 bandaríkjadalir á árinu 2014), þrátt fyrir að hér sé einn hæsti virðisaukaskattur á bíómiða í heiminum (var 25,5 prósent 2014). Íslenskar kvikmyndir gerðu það gott á árinu og var tekjuhæsta mynd ársins íslensk. Þrjár íslenskar kvikmyndir röðuðu sér á topp 20 listann yfir tekjuhæstu myndir ársins. Þar er fremst í flokki Vonarstræti sem var tekjuhæsta kvikmynd ársins en hún halaði inn tæpar 70 milljónir króna í tekjur og var jafnframt sú kvikmynd sem hlaut mesta aðsókn með tæpa 48.000 gesti. Þá var kvikmyndin Algjör Sveppi og Gói Bjargar Málunum í 8. sæti með rétt rúmar 37 milljónir króna í tekjur og rúmlega 32.600 manns í aðsókn þegar þetta er ritað, en myndin er enn í sýningu. Afinn hafnaði í 17. sæti með rúmar 22 milljónir króna í tekjur og tæpa 15.000 gesti. Þess má geta að engin íslensk kvikmynd náði inn á topp 20 listann á árinu 2013. Þær níu íslensku kvikmyndir sem sýndar voru á árinu voru með 13,3 prósent af markaðinum í tekjum talið en samtals höluðu íslenskar kvikmyndir inn tæpar 197 milljónir króna á árinu 2014. Hvað aðsókn varðar voru íslenskar myndir með 11 prósent af heildaraðsókn en rúmlega 148.000 gestir sóttu kvikmyndahúsin til að sjá íslenska framleiðslu. Þetta er umtalsvert betra en á árinu 2013 þar sem sjö íslenskar myndir voru einungis með 3,6 prósent af markaðinum í tekjum talið og enn minna í aðsókn. Önnur tekjuhæsta kvikmynd ársins er lokakaflinn um Hobbitann, The Hobbit: The Battle of the Five Armies, sem náði þeim ótrúlega árangri að hala inn yfir 50 milljónir króna og var með rúmlega 40.000 manns í aðsókn á einungis einni viku. Þá afrekaði hún það að vera með stærstu opnunarhelgi sögunnar í íslenskum kvikmyndahúsum, í tekjum talið, eftir frumsýninguna þann 26. desember sl. Sú þriðja vinsælasta, Guardians of the Galaxy, var jafnframt vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum á árinu 2014. Hér má sjá listann yfir 20 tekjuhæstu kvikmyndir ársins 2014:
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira