Greiðsluþrot blasir við: Framtíð Reykjanesbæjar ræðst á næstu sex vikum ingvar haraldsson skrifar 30. október 2015 15:07 Kjartan Már Kjartansson, bæjarstóri Reykjanesbæjar þorir ekki að segja til um hvort viðræður við kröfuhafa muni ganga sem skyldi. vísir
Takist samningar ekki við lánardrottna Reykjanesbæjar blasir greiðsluþrot við á næsta ári. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar á von á því að niðurstaða fáist í viðræðum við kröfuhafa á næstu sex vikum eða áður en önnur umræða um fjárhagsáætlun bæjarins fer fram þann 15. desember.Í fjárhagsáætluninni, sem er fyrir árin 2016-2019, kemur fram að handbært fé bæjarsjóðs verði uppurið á næsta ári. Samkvæmt áætluninn verður handbært fé bæjarsjóðs neikvætt um 231 milljón króna í árslok 2016 og handbært fé A og B hluta verði orðið neikvætt um 2,6 milljarða króna. Kjartan þorir ekki að segja til um hvort niðurstaðan í viðræðunum verði jákvæð eða neikvæð fyrir bæinn. „Það þokast í átt að niðurstöðu en ég þori ekkert að segja til um að það endi í samkomulagi,“ segir Kjartan. Reykjaneshöfn á einnig í viðræðum við kröfuhafa sína. Höfnin hefur þegar fengið greiðslustöðvun samþykkta á skuldum sem voru á gjalddaga þann 15. október fram til 30. nóvember.Fjárhagsnefnd skipuð og skorið niðurLendi Reykjanesbær í greiðslufalli þarf innanríkisráðuneytið að skipa fjárhagsnefnd yfir sveitarfélaginu að sögn Kjartans. Þá blasi væntanlega niðurskurður við. „Það verður einhver starfsemi lögð af, dregið saman, allt sem er ekki lögbundið geri ég ráð fyrir,“ segir Kjartan. Þær ákvarðanir verði þó væntanleg á borði fjárhagsnefndarinnar. Samanlagt nema afborganir lána A og B hluta tæpum 3,6 milljörðum á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætluninni. Samkvæmt áætluninni er búist við því að 600 milljón króna tap verði samtals af rekstri A og B hluta Reykjanesbær en af bæjarsjóði einum verði tapreksturinn 773 milljónir króna.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira