Unnur Mjöll nýr framkvæmdastjóri Samtaka Vefiðnaðarins Sæunn Gísladóttir skrifar 29. október 2015 16:09 Unnur Mjöll hefur starfað sem myndlistarmaður og hefur sýnt verk sín víða.
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Samtaka Vefiðnaðarins (SVEF). Frá stofnun samtakana hefur skipulag verið alfarið í höndum grasrótinnar, stjórnar og félagsmanna og má segja að nú sé nýr kafli framundan í sögu SVEF þar sem fyrsti starfsmaðurinn hefur verið ráðinn. Stjórn SVEF sér gríðarleg tækifæri í eflingu vefiðnaðarins og bindur miklar vonir við að Unnur Mjöll leiði þá vinnu af miklum dug. Unnur hefur áður starfað sem safnfulltrúi og staðgengill forstöðumanns til skemmri tíma hjá Hafnarborg, lista og menningarsetri Hafnarfjarðar og hjá Listasafni Reykjavíkur þar sem hún sá meðal annars um framkvæmd ýmissa viðburða og sýninga. Auk þess hefur hún starfað sem myndlistarmaður og hefur sýnt verk sín víða m.a. í New York og Seoul og í S. Kóreu. Unnur Mjöll er með MFA frá School of Visual Arts í New York og MA í Menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún er einnig með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við. SVEF sér árlega um framkvæmd Íslensku vefverðlaunanna og stendur fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda. Félagsmenn SVEF eru um 300 talsins en og koma úr ýmsum sviðum vefheima en meðal félagsmanna má m.a. finna vefara, forritara, hönnuði, vefstjóra, prófara, markaðsstjóra, framkvæmdastjóra, kennara o.s.frv. SVEF mun standa fyrir morgunverðarfundi þann 17. nóvember í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, undir yfirskriftinni Hvað kostar vefur í dag? Þar verður velt upp ýmsum hliðum á þeim teningi, Sigurjón Ólafsson hjá Fúnksjón og Jón Cleon hjá Landsvirkjun verða með sitt hvort erindið á þeim fundi.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira