Slagsmál og fíkniefni á Þjóðhátíð Snærós Sindradóttir skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Þessi lögreglumaður fylgdist vel með gestum í Vestmannaeyjum. vísir/vilhelm
Karl skallaði konu í andlitið á Þjóðhátíð í Eyjum og var handtekinn í kjölfarið. Maðurinn og konan þekktust en ekki hefur verið lögð fram kæra í málinu. Þetta var eitt þeirra fjölmörgu lögreglumála sem komu upp í Vestmannaeyjum um helgina, þegar um fimmtán þúsund manns komu saman til að skemmta sér. Lögregla greinir frá því að sjötíu fíkniefnamál hafi komið upp. „Langmest var tekið af amfetamíni og kókaíni og mun minna af kannabisefnum en á öðrum hátíðum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. Mikil áhersla var lögð á fíkniefnaleit en lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, Páley Borgþórsdóttir, tók þá ákvörðun fyrir helgi að upplýsa ekki um kynferðisbrot og sagði í samtali við DV: „Að mínu mati varðar mál líkt og fíkniefnamál meira við almannahagsmuni.“ Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri gekk helgin vel. Þar fór fram hátíðin Ein með öllu eins og undanfarin ár. Ekki hefur verið tekið saman hvort og hve mörg fíkniefnamál hafi komið upp. Von er á upplýsingum um það síðar í dag. Á Neskaupstað, þar sem Neistaflug var haldið, komu engin fíkniefnamál upp og engar líkamsárásir. Enginn gisti fangageymslu. Lögreglumaður á vakt sagði í samtali við Fréttablaðið að helgin hefði verið rólegri en margar aðrar hefðbundnari helgar.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjá meira