Sárt svíður undan sviknum loforðum Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 16. júlí 2015 07:00 Engum blöðum er um það að fletta að ástandið í heilbrigðismálum þjóðarinnar er grafalvarlegt. Nokkur hundruð hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á Landspítalanum. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hefur sagt að byggja þurfi upp kerfið og nóg af öflugu starfsfólki sé lykilatriði. Hér á landi, vel að merkja, ekki í Noregi þar sem mikið af því góða starfsfólki sem nú starfar á spítalanum verður í vinnu í vetur. Forstjórinn og ráðamenn hafa líka sagt að nauðsynlegt sé að sátt náist um kjör stéttarinnar. Kannski er sáttina um kjör hjúkrunarfræðinga að finna hjá ráðamönnum, en hjúkrunarfræðingar sýndu það í verki í gær að hjá þeim er hana ekki að finna. Um 88% þeirra felldu kjarasamning og allt stefnir í að launadeilan fari fyrir gerðardóm. Viðbrögð Kristjáns Þórs Júlíussonar, ábyrgðarmanns heilbrigðismála, eru á þá leið að líklega þurfi að flytja inn erlenda hjúkrunarfræðinga. Og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, maðurinn sem ber ábyrgð á kjörum hjúkrunarfræðinga, segir að málið eigi bara að fara í gerðardóm. Kristján og Bjarni eru báðir í Sjálfstæðisflokknum. Fyrir síðustu kosningar gaf sá flokkur eftirfarandi út, til að fá sem flesta til að kjósa sig, en út á það gengur kosningastefnuskrá: „Mikilvægt er að auka gegnsæi og breyta forgangsröðun við fjárveitingar til endurskipulagningar og uppbyggingar á heilbrigðiskerfinu í þágu sjúklinga og starfsfólks.“ Og til að skýra málið enn frekar var vitnað í ályktun velferðarnefndar síðasta landsfundar flokksins: „Leggja verður ríka áherslu á breytta forgangsröðun varðandi fjárveitingar til endurskipulagningar og uppbyggingar á heilbrigðiskerfinu í þágu sjúklinga og með bættu starfsumhverfi og kjörum heilbrigðisstétta.“ Nú má vel vera að sjálfstæðismenn hafi aðeins verið að ræða um kjör lækna, en ekki annarra heilbrigðisstétta, en það hefði verið betra að vita það fyrir kosningar. Ríkisstjórnin setti sér líka stefnu í heilbrigðismálum. Þar er sagt brýnt að vinna að langtímastefnumótun heilbrigðiskerfisins með eðlilegu samráði við fagfólk heilbrigðisstarfsfólks og það verður áhugavert að sjá hvað kemur út úr þeirri vinnu, sem hlýtur að vera vel á veg komin. Þar segir líka: „Íslenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnisfært við nágrannalönd um tækjakost, aðbúnað sjúklinga og aðstæður starfsmanna.“ Það er morgunljóst að íslenskt heilbrigðiskerfi er ekkert af því sem ríkisstjórnin lofaði að það yrði í stefnuyfirlýsingu sinni sem samin var af þeim Bjarna og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í vorblíðunni á Laugarvatni fyrir tveimur árum. Ábyrgðina á því ástandi sem ríkir í heilbrigðismálum bera stjórnmálamenn svikalaust. Ekki bara þeir sem nú sitja við völdin, líka þeir sem árum og áratugum saman leyfðu ástandinu að þróast þannig að vel menntað og hæft starfsfólk flýr land. Þeir sem nú eru við stjórnvölinn eiga hins vegar að standa við það sem þeir lofuðu. Ef þjóðfélagið fer á hliðina við að hjúkrunarfræðingar hafi mannsæmandi laun, þá á einfaldlega ekki að lofa slíku fyrir kosningar. Loforð sem ekki á að standa við, eða lygar, hafa nefnilega afleiðingar og undan þeim svíður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Kolbeinn Óttarsson Proppé Mest lesið Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir Skoðun
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun