Heilsa

Endurskoðuð áramótaheit

Rikka skrifar
Nú er rétti tíminn til að rifja upp áramótaheitin, taka stöðuna á hvar þú ert og hvar þú vilt vera og grípa svo til aðgerða, það er aldrei of seint að byrja.
Nú er rétti tíminn til að rifja upp áramótaheitin, taka stöðuna á hvar þú ert og hvar þú vilt vera og grípa svo til aðgerða, það er aldrei of seint að byrja. Vísir/Getty
Manstu þegar þú strengdir áramótaheit snemma í upphafi ársins og lofaðir sjálfinu að huga betur að heilsunni, hætta að reykja, rífa kjaft eða minnka mittismálið eftir óhófleg veisluhöld undanfarinna daga?

Réttið upp hönd, þið ykkar sem núna sjö mánuðum síðar fylgir settum markmiðum.

Nei, það er nefnilega það sem ég hélt.

Meira en helmingur þeirra sem strengja heit um áramótin er búinn að gefast upp á þessum tímapunkti og oft og tíðum á sama stað og þeir voru í lok síðasta árs. Ef markmiðin voru raunhæf og mannbætandi þá er um að gera að rifja þau upp og huga að nokkrum atriðum sem gætu komið þér aftur af stað.

Notaðu dagatalið

Flestir eru með dagatal í tölvunni eða símanum og er upplagt að skipuleggja vikuna á sunnudagskvöldum, það eru meiri líkur á því að af atburðum verði. Ákveddu að þú ætlir í líkamsrækt eða rækta fjölskylduna og settu það á dagatalið hvenær þú ætlar að gera það.

Sjáðu takmarkið fyrir þér

Greindu markmiðið þín og spurðu þig af hverju þú vilt ná þeim. Hverjum er það til góða, yrði líf þitt betra? Sjáðu fyrir þér hvernig líf þitt yrði ef þú næðir tilsettum markmiðum.

Verðlaunaðu þig

Hafir þú sett þér háleit markmið er afskaplega gott að búta þau niður í smærri hluta. Segjum sem svo að þú ætlir þér að missa tólf kíló á árinu, hlutaðu markmiðið þá niður í 1 kíló á mánuði og verðlaunaðu þig þegar þú nærð því.

Skrifaðu niður

Ein áhrifaríkasta leiðin til þess að ná árangri er að skrifa niður markmiðin, taktu þér tíma til að skrifa þau niður og spurðu þig um leið af hverju þú viljir ná þeim.

Segðu frá

Ein leið til þess að setja pressu á sjálfan sig er að segja öðrum frá settum markmiðum.

Jákvæðni

Jákvæðni veitir mikinn drifkraft og er skynsamleg sem rauður þráður í að ná settum markmiðum.


Tengdar fréttir

Gullni meðalvegurinn

Ekkert lát er á vaxandi mittismáli heimsbúa og stefnir í faraldur. Með auknu álagi á vinnumarkaði og í einkalífi virðist fólk frekar sækja í sykurríkara mataræði með fyrrgreindum afleiðingum.

Með heimsmet í bakpokanum

Vilborg Arna Gissurardóttir setti heimsmet þegar hún gekk ein fyrst kvenna á suðurpólinn. Annað heimsmet setti hún svo þegar hún gekk án leiðsögumanns og súrefnis upp á Cho Oyu, sjötta hæsta fjall í heimi. Vilborg er nýkomin heim frá Nepal og segir okkur sína sögu.

Kátust, sterkust, sætust

Þeir sem fróðari eru um næringarfræðin en þverskurður þjóðarinnar mæla með því að neytt sé fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. En skiptir máli hvort við njótum þeirra í fljótandi eða föstu formi? Kemur þetta ekki allt á sama stað niður hvort sem er?

Fullur bolli af hamingju

Lykillinn að lífshamingjunni er meðal annars að njóta stundarinnar sem er hér og nú og horfast í augu við verkefnin, sinna fjölskyldunni, vinunum og vinnunni og horfa björtum augum fram á veg.

Láttu gott af þér leiða

Þeir sem þurfa á hjálp að halda eru kannski nær en þig grunar. Fólk er oft og tíðum óduglegt að biðja um hjálp nema þegar neyðin bankar upp á, vandamálin geta þá oft verið orðin svo stór að erfitt getur verið að leysa þau








×