Viðskipti innlent

Komust ekki á Kvíabryggju

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson í gráum jakkafötum í dómssal í dag. Í aftari röð er Sigurður Einarsson.
Hreiðar Már Sigurðsson í gráum jakkafötum í dómssal í dag. Í aftari röð er Sigurður Einarsson. vísir/stefán

Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson og Sigurður Einarsson komust ekki aftur á Kvíabryggju að loknum fyrsta degi í aðalmeðferð CLN-málsins.

Ástæðuna má rekja til óveðursins en veginum um Kjalarnes var lokað síðdegis. Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings munu því þurfa að dvelja í hegningarhúsinu á Skólavörðustíg í nótt.

Hreiðar Már og Sigurður báru vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og framundan er skýrslutaka yfir Magnúsi Guðmundssyni á morgun. Reiknað er með því að aðalmeðferðin standi að minnsta kosti fram á fimmtudag.

 



 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×