Arctica Finance kaupir H.F. Verðbréf Sæunn Gísladóttir skrifar 30. september 2015 16:27 Daði Kristjánsson er framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa. Vísir/GVA
Móðurfélag Arctica Finance hf. hefur keypt allt hlutafé í H.F. Verðbréfum. Kaupin eru háð fyrirvara um að Fjármálaeftirlitið samþykki þau. Ef kaupin ganga eftir mun starfsemi félaganna vera undir merkjum Arctica Finance. Verðmæti viðskiptanna er trúnaðarmál, en greitt var fyrir kaupin með reiðufé. Í tilkynningu er haft eftir Stefáni Þór Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Arctica Finance, að á þeim tæpu 7 árum sem liðin séu frá stofnun Arctica Finance hafi félagið náð traustri stöðu á íslenskum fjármálamarkaði. Með kaupunum á H.F. Verðbréfum séu tækifæri til að styrkja Arctica enn frekar, einkum á sviði verðbréfamiðlunar og fyrirtækjaráðgjafar. Halldór Friðrik Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður H.F. Verðbréfa segir að með sölunni ljúki 12 ára starfsemi félagsins á verðbréfamarkaði. Hún hafi hafist með litlu skrefi í desember 2003 og hafi allar götur síðan verið viðburðarrík, krefjandi og gjöful. Starfsemi Arctica Finance og H.F. Verðbréfa fellur vel saman að sögn Halldórs og hagræðingin sem af hlýst umtalsverð. Heildareignir H.F. Verðbréfa námu í árslok 2014 um 273 milljónum króna og var bókfært virði eigin fjár um 223 milljónir króna. Hjá H.F. Verðbréfum starfa 11 manns. Framkvæmdastjóri er Daði Kristjánsson. Heildareignir Arctica Finance voru í árslok 2014 um 700 milljónir króna og var bókfært virði eigin fjár um 540 milljónir króna. Starfsmenn Arctica Finance eru 18 talsins. Framkvæmdastjóri er Stefán Þór Bjarnason.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira