Fjölmargir hafa minnst Bianchi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2015 19:45 Bianchi var 26 ára þegar hann lést. vísir/getty
Fjölmargir hafa minnst franska ökuþórsins Jules Bianchi sem lést í morgun eftir að hafa legið í dái í níu mánuði vegna alvarlegra höfuðáverka sem hann varð fyrir í japanka kappakstrinum í október í fyrra. „Ég votta fjölskyldu hans og vinum mína dýpstu samúð,“ skrifaði Jenson Button á Twitter og heimsmeistararinn Lewis Hamilton tók í sama streng: „Þetta er mikill sorgardagur. Biðjum fyrir aðstandendum Jules. Hvíl í friði og guð blessi þig.“ Bianchi keyrði fyrir Manor Marussia og en hann keppti í 34 kappökstrum fyrir þeirra hönd. Hann er fyrsti Formúlu 1-ökumaðurinn í 21 ár sem deyr í kjölfar slyss, eða síðan Brasilíumaðurinn Ayrton Senna lést eftir hörmulegt slys í San Marinó-kappakstrinum 1994. John Booth, liðsstjóri Manor Marussia, segir að framtíð Bianchi hafi verið björt. „Jules bjó yfir miklum hæfileikum. Hann átti glæsta framtíð fyrir höndum, sem hann verðskuldaði svo sannarlega,“ sagði Booth en Bianchi vann fyrstu stig Manor-liðsins í Formúlu 1 þegar hann kom níundi í mark í Mónakó-kappakstrinum 25. maí 2014. „Hann var líka frábær einstaklingur sem heillaði fjölda fólks um allan heim. Það sá, líkt og ég, kappsfullan ökumann en jafnframt einstaklega hlýjan, hógværan og viðkunnanlegan mann.“ Eddie Jordan, álitsgjafi hjá BBC og fyrrverandi eigandi Jordan-liðsins, minntist Bianchi sömuleiðis hlýlega. „Það gerist sjaldan að við finnum svona gimstein, eins og Lewis Hamilton, Ayrton Senna og Michael Schumacher. Jules átti möguleika á að komast í hóp þeirra. „Bianchi var virtur, elskaður og dáður. Hann var frábær strákur og verðandi heimsmeistari.“Last night we lost a truly great guy and a real fighter #RIPJules my sincerest Condolences to his family and friends.— Jenson Button (@JensonButton) July 18, 2015 A sad, sad day today, guys. Please pray for Jules' loved ones. RIP Jules. God bless. pic.twitter.com/ODqQ5uHsyG— Lewis Hamilton (@LewisHamilton) July 18, 2015
Formúla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira