Áætlunarflug milli Reykjavíkur og Húsavíkur hafði legið niðri um tólf ára skeið þegar Flugfélagið Ernir endurvakti flugleiðina fyrir þremur árum. Svo glaðir voru Þingeyingar að þrjúhundruð manns mættu á Aðaldalsflugvöll til að fagna Herði Guðmundssyni og félögum sem byrjuðu með því að fljúga nítján sæta Jetstream-vélum fjóra daga vikunnar, alls sjö ferðir í viku.

„Við erum að fara 11-12 ferðir núna, sem er bara áætlun, fyrir utan aukaferðir, sem við erum að fara nánast í hverri einustu viku núna. Ég á von á að því að þetta gætu orðið þetta 15-20 ferðir í viku meðan framkvæmdir eru í gangi,“ segir Hörður.
Flugfélagið Ernir skoðar nú hvort þörf sé á að taka í notkun 30 sæta vél til Húsavíkur, eins og af gerðinni Jetstream 41 og Saab 340.

En það er ekki bara Húsavík. Fleiri áætlunarstaðir hjá félaginu kalla á aukið flug og stærri vél og nefnir Hörður Vestmannaeyjar og Hornafjörð. Þangað sé vaxandi farþegafjöldi, eins og er.
„Þetta hefur verið í lægðinni og við erum að sjá í fyrsta skipti núna í nokkur ár að það er að fjölga farþegum frá mánuði til mánaðar, miðað við sömu mánuði á síðasta ári og þar áður.“
Þegar spurt er hvort unnt sé að lækka flugfargjöldin vill Hörður beina umræðunni að ríkisvaldinu.
„Þetta á að vera hægt með því að laga skattaumhverfið og álögur og gjöld.“