Leikhúsmógúllinn hefur hagnast um 3,5 milljarða frá hruni ingvar haraldsson skrifar 28. október 2015 10:00 Systkinin Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Mogul Holding, og Signý Eiríksdóttir, verkefnisstjóri hjá fyrirtækinu. vísir/valli
Leikhúsfélagið Mogul Holding ehf., sem áður hét Leikhúsmógúllinn, hefur hagnast um 3,5 milljarða króna frá og með hrunárinu 2008. Félagið er fjölskyldufyrirtæki, stofnað utan um framleiðslu leiksýninga í Þýskalandi árið 2000 og á sýningarréttinn á Hellisbúanum og fleiri sýningum. Sýningar á vegum Mogul Holding hafa verið settar upp í 41 landi. „Við erum eitt af stærri leikhúsframleiðslufyrirtækjum í heimi og af þeim sem eru að setja upp minni sýningar erum við langstærst og langútbreiddust,“ segir Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Mogul Holding. Óskar á ásamt tveimur systrum sínum og föður sínum samtals 60 prósenta hlut í félaginu. Fyrirtækið á þátt í uppsetningu á milli 2.500 og 5.000 leiksýninga á ári hverju og er með skrifstofur á Íslandi, í Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Óskar segir að Hellisbúann hafi reynst félaginu ábatasamastur. Þá hafi Þýskaland alla tíð verið stærsti markaður félagsins. „Gulleggið hefur verið Þýskalandsmarkaður sem varð til þess að við gátum stækkað,“ segir Óskar. Mogul Holding hagnaðist um 170 milljónir króna í fyrra. Rekstrartekjur námu 970 milljónum króna og rekstrarhagnaður fyrir afborgun lána og tekjuskatts, nam 388 milljónum króna. Árið 2013 hagnaðist félagið um 1,1 milljarð króna en það skýrðist að stærstum hluta af endurútreikningum lána sem lækkuðu lán félagsins um 778 milljónir króna. Eignir Mogul Holdings nema 10,5 milljörðum króna, þar af er hugverkaréttur að leikritum bókfærður á 9,7 milljarða króna. Eigið fé félagsins nemur 5,8 milljörðum króna og skuldir 4,7 milljörðum króna.Deilur í hlutahafahópnum Deilur hafa staðið um talsverða hríð meðal hluthafa félagsins. Mango Tree BV, sem á 22 prósenta hlut í félaginu, hefur farið fram á innlausn síns hlutar og rekur nú dómsmál gegn Mogul Holdings vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Mango Tree hefur áður tapað málum fyrir dómstólum gegn félaginu. Mango Tree er í eigu sjóðsins Brú II, sem er að langstærstum hluta í eigu lífeyrissjóða og hefur verið í umsjón Thule Investments.
Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Sjá meira