Facebook eyðir „Others“ möppunni Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. október 2015 21:24 Þessi mappa kann að geyma fullt af merkilegum skilaboðum sem fáir berja nokkurn tímann augum. Mynd/Business Insider
Yfirmaður spjallforritshluta Facebook, sem flestir þekkja undir nafninu Messenger, tilkynnti á Facebook-síðu sinni í gær að samskiptamiðillinn hygðist hætta að flokka skilaboð sem kæmu frá ókunnugum í sérstaka möppu. Þau skilaboð hafa alla jafna farið í sérstaka möppu, sem ýmist heitir „Annað“ eða „Other,“ og hafa fjölmargir notendur Facebook kvartað yfir þessu fyrirkomulagi. Þeir hafa sagt að of lítið fari fyrir þessari möppu og maður reki því sjaldan augun í hana. Þá sést hún alls ekki í símum eða spjaldtölvum. Það er sérstaklega bagalegt í ljósi þess að þar kunna að leynast fjölmörg mikilvæg skilaboð frá fólki sem er ekki endilega vinir þínir á Facebook. Blaðamaður Business Insider sagði til að mynda í þessu samhengi að hann hafi eitt sinn glatað veskinu sínu og miskunnsamur Samverji fundið það, sent honum skilaboð en hann hafi aldrei tekið eftir þeim. Þær áhyggjur eru þó úr sögunni með hinum nýju „Skilaboðabeiðnum“ (e. Message Request) sem Facebook mun ýta úr vör á næstunni. Þessar beiðnir munu birtast í aðalhluta spjallforritsins sem notandinn getur svo ákveðið að samþykkja eða hunsa. Fyrirtækið segist þó ætla að halda áfram að taka hart á öllum ruslpósti og sjá til þess að notendur Facebook fái ekki beiðnir frá fólki sem það telur ekki vera til.Svona mun nýja fyrirkomulagið koma til með að líta útMynd/facebook
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Innflytjendur krefjast skýrari íslenskustefnu Kynningar Alhliða lausnir í upplýsingatækni Kynningar Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Vísindamenn í fiskvinnslu þróa heilsuvörur úr roði og beinum Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Fleiri fréttir Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Sjá meira