Argentína og Brasilía töpuðu bæði | Agüero meiddist Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2015 07:00 Vísir/Getty
Argentína og Brasilía töpuðu bæði leikjum sínum er undankeppni HM 2018 hófst í Suður-Ameríku í nótt. Allar tíu þjóðir Suður-Ameríku eru saman í einum riðli í undankeppninni og komast fjögur efstu liðin beint á HM í Rússlandi. Liðið í fimmta sæti fer svo í umspil gegn þjóð frá annarri álfu. Brasilía tapaði fyrir Suður-Ameríkumeisturum Síle á útivelli, 2-0. Eduardo Vargas og Alexis Sanchez skoruðu mörk heimamanna, bæði í seinni hálfleik. Síle var sterkari aðilinn í leiknum en áður en Vargas kom liðinu yfir höfðu Sanchez og Maauricio Isla báðir átt stnagarskot. Brasilía ógnaði helst með skyndisóknum í leiknum en þeir náðu þó að skapa sér fá færi. Neymar var ekki með vegna leikbanns og nýtti Síle fjarveru hans til að vinna í Brasilíu í fyrsta sinn síðan 2000. Argentína tapaði svo fyrir Ekvador á heimavelli, 2-0. Erazo og Caicedo skoruðu mörk gestanna. Lionel Messi var ekki með vegna meiðsla og Sergio Agüero var borinn af velli eftir 20 mínútna leik með tárin í augunum. Hann meiddist aftan í læri og er ekki ljóst hversu lengi hann verður frá. Agüero átti samt besta færi leiksins fyrir Argentínu sem sótti lítið án sinna bestu sóknarmanna. Þetta var fyrsti sigur Ekvador í undankeppni HM í Argentínu. Úrúgvæ vann svo góðan sigur á Bólivíu á útivelli, 2-0, sem og Paragvæ sem sótti þrjú stig til Venesúela með 1-0 sigri. Kólmbía hafði svo betur gegn Perú, 2-0, á heimavelli.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Dagskráin í dag: Kópavogsslagur í Bestu deildinni Sport Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Mahomes í hlutverki leiðsögumanns í heimsókn Chiefs í Hvíta húsið Sport „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Fleiri fréttir Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Sjá meira