Umbætur í Hafnarfirði 9. október 2015 00:00 Rósa Guðbjartsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar
Niðurstöður ítarlegrar greiningar á fjárhag og rekstri stofnana Hafnarfjarðarbæjar liggja nú fyrir. Það var eitt af fyrstu verkefnum nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn að fá óháða ráðgjafa til þess verks. Ráðgjafarnir lögðu fram hundruð tillagna um hvernig bæta mætti reksturinn, ná fram meiri skilvirkni í kerfinu og almennt ráðstafa betur fjármunum bæjarbúa með betri nýtingu innviða í huga og án þess að skerða þjónustu til íbúanna. Nokkrar tillagnanna, einkum þær er lutu að breytingum á stjórnkerfinu, hafa þegar komið til framkvæmda. Meðal annars hefur rekstrar-, fjármála- og lögfræðistarf bæjarins verið styrkt. Aðrar tillögur hafa verið lagðar fram og eru til lýðræðislegrar umfjöllunar í viðeigandi ráðum, nefndum og/eða hjá stjórnsýslu bæjarins. Næðu allar tillögur ráðgjafanna fram að ganga er talið að árleg útgjöld gætu minnkað um allt að 600 milljónir króna. Hafnarfjarðarbær hefur um árabil verið í hópi allra skuldsettustu sveitarfélaga landsins. Fyrstu verk meirihluta Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks voru því að ráða bæjarstjóra með sterkan grunn í rekstri og fjármálum sveitarfélaga og greina síðan tækifæri bæjarins til úrbóta á markvissan og ítarlegan hátt með aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga. Í aðdraganda síðustu kosninga lá fyrir að brýnt væri að gera breytingar við stjórnun og rekstur sveitarfélagsins. Fyrir lá að sveitarfélagið hefði einfaldlega ekki borð fyrir báru kæmi til mikilla óvæntra útgjalda, vegna þungrar skuldastöðu. Nýlegar og fyrirsjáanlegar launahækkanir og auknar lífeyrisskuldbindingar eru því mikil áskorun fyrir Hafnarfjarðarbæ. Nýr meirihluti gerði sér grein fyrir því að viðsnúningur í fjárhag bæjarins yrði eitt af stóru verkefnunum á kjörtímabilinu. Nú er hins vegar ljóst að róðurinn er mun þyngri en áætlanir á síðasta kjörtímabili gerðu ráð fyrir. Öll sveitarfélög takast nú á við aukinn kostnað í kjölfar kjarasamningsbreytinga og skuldsetning fyrri ára er íþyngjandi í þeirri glímu. Rekstrargreining bæjarins, eitt af forgangsverkefnum nýs meirihluta, er mikill styrkur í þeirri áskorun sem fram undan er. Nú þarf að taka höndum saman við að rétta fjárhaginn til framtíðar með markvissum hætti, snúa vörn í sókn og efla bæjarfélagið. Fjölmörg umbótaverkefni hafa þegar farið af stað og önnur eru í undirbúningi í ráðum og nefndum bæjarins. Við ætlum að koma Hafnarfirði í fremstu röð.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira