Svanþór ráðinn fjármálastjóri í stað Önnu Svövu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. október 2015 09:49 Svanþór er fæddur í Reykjavík árið 1979 og nam viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og stundaði meistaranám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands.
Svanþór Laxdal hefur verið ráðinn fjármálastjóri hjá auglýsingastofunni Pipar\TBWA en hann hóf störf í byrjun októbermánaðar. Svanþór tekur við starfi Önnu Svövu Sverrisdóttur sem hættir eftir um 25 ár í starfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Svanþór er fæddur í Reykjavík árið 1979 og nam viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og stundaði meistaranám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands. Svanþór hefur víðtæka reynslu úr auglýsingageiranum og starfaði í tíu ár hjá Expo auglýsingastofu og eitt ár hjá Vert - markaðsstofu. Svanþór var snemma farinn að sýna markaðs- og sölumálum áhuga en hann var einungis 12 ára þegar hann var farinn að selja sjónvörp og önnur raftæki í Radíóbúðinni, sem fjölskylda hans rak á sínum tíma eins og segir í tilkynningunni. „Það mætti segja að áhuginn á viðskiptum sé í blóðinu og mér finnst ég vera á heimavelli í svona fjölbreyttu rekstrarumhverfi sem fylgir auglýsingabransanum,” segir Svanþór. „Mér finnst gaman að takast á við ný og krefjandi verkefni og vinna í skapandi umhverfi með ólíkum einstaklingum og það er óhætt að segja að starfsfólkið á Pipar sé skapandi og kraftmikið, sem mun gæða lífi í starfið mitt,” bætir Svanþór við.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Sjá meira