
Að fá stjörnur …
LímmiðarÞetta er vissulega þénugt. Sé maður lauslega forvitinn um einhverja liststarfsemi eða feril tiltekins listamanns en ekki nægilega til að maður nenni að lesa heila grein um afurðir viðkomandi getur maður séð á stjörnugjöfinni í fljótu bragði hvernig til tókst. Í mjög fljótu bragði og mjög almennt talað. Listamenn þurfa vissulega á viðbrögðum að halda við sköpun sinni – „hvernig var þetta hjá mér?“ er algengasta spurning listamanna sem til er – en þeir hafa í rauninni ósköp lítið við stjörnur að gera; fái listamaðurinn fullt hús gleðst viðkomandi auðvitað, en er svo sem litlu nær að öðru leyti. Hefði verið meira gaman að fá rósir.
Að fá stjörnur fyrir listaverk er eins og þegar maður var í skóla og fékk Ágætt, Gott, Sæmilegt eða Áfátt fyrir. Að fá stjörnur er eins og að fá límmiða fyrir verkefni, sem maður má svo setja í límmiðabókina sína. Umbun fyrir unnið starf, veitt af einhverjum sem er hærra settur listamanninum sjálfum í stigveldi menningarlífsins. Þetta er angi af ákveðinni tilhneigingu til infantílíseringar listamanna í samfélaginu; setja listamanninn í barnslegt hólf í samfélaginu þar sem hann getur fengið að leika sér. Listamaðurinn er náttúrlega í sambandi við barnið í sér eins og við eigum öll að vera, og getur sótt það þegar á þarf að halda – alveg eins og gamalmennið í sér, konuna í sér, karlinn, vitringinn eða fávitann – öll þessi mannlegu einkenni og hlutverk sem listamenn fást við: en listamaðurinn er ekki barn og þarf ekki að leika hið óábyrga og óþekka barn í samfélaginu; og listamaðurinn á ekki að vera í stöðu barnsins gagnvart kennaranum þegar hann stendur frammi fyrir gagnrýnandanum.
Að fá stjörnur fyrir listaverk … það er eitthvað skrýtið við það, eitthvað rangt, eitthvað sem geigar gersamlega og er algerlega á skjön við sjálfa liststarfsemina ... Að fá umsögn í stjörnum eftir sköpun á listaverki er eins og að fá afslátt á farmiða til Akureyrar að afloknu prófi í vélaverkfræði í staðinn fyrir einkunn. Það er eins og að spyrja hvar salernið sé og fá afhenta brauðrist. Það er ágætt í sjálfu sér en beinist að allt öðru sviði en því sem um er fjallað. Og fyrir sjálfan „neytandann“ sem kann að hafa áhuga á listum er það að skoða stjörnugjöf í stað þess að lesa heila umsögn eins og að borða duftið af maggísúpu án þess að það sé sett út í heitt vatn.
Fimmtán kúbíksentimetra myndStjörnugjöfin er hluti af viðleitni til að búa til „frammistöðumat“ um listaverkið og skipa því niður í flokka eins og gert er við lambakjöt. Þetta er gert til hægðarauka fyrir „neytandann“, og litið svo á að listaverkið sé vara á markaði sem þar til gerðir „matsmenn“ gefa einkunnir og segja til um hversu hæft sé til neyslu.
Hvernig á slíkt frammistöðumat að geta farið fram? Fær Ódysseifskviða fjórar eða fimm stjörnur? Andalúsíuhundurinn? En Bakkabræður í Austurstræti? Er slík mynd yfirhöfuð nokkurs staðar í námunda við þá vídd þar sem stjörnugjöf tíðkast? Njála? Fær hún kannski bara þrjár stjörnur út af allri leiðinlegu og vitlausu lögfræðinni sem þar er að finna, og dregur óneitanlega úr þeirri ánægju sem lesandinn kann að hafa af lestrinum?
Þetta er ekki einfalt mál. Öll góð list er nefnilega svolítið vond (samkvæmt hefðbundnum mælikvörðum, brýtur einhverjar reglur) – og öll vond list er dálítið góð. Margir miklir listamenn leita skekkjunnar í atferli einstaklinga og samfélaga og þurfa að fara krókaleiðir til að finna hana. Það er í skekkjunni sem við finnum mennskuna, en stundum kemur ekkert í leitirnar annað en skekkjan.
Listaverk sem lánast nær að hæfa mann í þær stöðvar heilans sem taka við og vinna saman úr listaverkum svo að úr verður heildarkennd sem lýsa má sem unaði; fyrir kemur meira að segja að heimsmynd manns breytist. Hvernig lýsir maður slíkri reynslu? Hvernig gefur maður geðshræringu stjörnur? Til hvers að gefa brosi stjörnur?
Sérhvert listaverk er organismi, lífheild, öðruvísi en öll önnur verk, sérstakt; lýtalaust eða gallað eftir atvikum. Það fer stundum eftir sjónarhorni þess sem horfir á það. Galli á listaverki er oft helsti kostur þess. Og öfugt. Stjörnugjöf er ámóta vel fallin til að lýsa listaverkum og kúbíksentimetrar. Og svo er hitt: það er ekki hægt að gefa afmarkaðan fjölda af stjörnum. Þær eru nefnilega óteljandi rétt eins og listin hefur í sér ómælið sjálft.
Skoðun

Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn
Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar

Geislameðferð sem lífsbjörg
Ingibjörg Isaksen skrifar

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Stöðvum helvíti á jörðu
Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Hversu mikið er nóg?
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Til þeirra sem fagna
Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar

Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis
Elliði Vignisson skrifar

Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni
Ellen Calmon skrifar

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar