Ellefu missa vinnuna við lokun útibúa Landsbankans Birgir Olgeirsson skrifar 18. september 2015 16:31 Frá Suðureyri við Súgandafjörð. vísir/pjetur
Landsbankinn hefur ákveðið að sameina útibú á Vestfjörðum sem áður tilheyrðu Sparisjóði Norðurlands, við útibú Landsbankans á Ísafirði. Síðasti afgreiðsludagur útibúanna á Suðureyri og Bolungarvík verður 24. september, en póstafgreiðsla á vegum bankans í Bolungarvík verður opin til 30. október, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Þar segir að ákveðið hefur verið að sameina einnig afgreiðslu Landsbankans á Þingeyri útibúinu á Ísafirði. Síðasti afgreiðsludagur á Þingeyri verður 24. september. Hluti starfsfólks í útibúinu í Bolungarvík mun hefja störf í útibú Landsbankans á Ísafirði en samtals láta 11 manns af störfum vegna þessara breytinga. Við sameininguna verður til stórt öflugt útibú á Ísafirði sem þjónar norðanverðum Vestfjörðum og ætlað er að veita víðtækari þjónustu en áður. Af hálfu bankans er áhersla lögð á að viðskiptavinir verði sem minnst varir við breytingar og að þjónusta skerðist eins lítið og unnt er. Miklar breytingar hafa orðið á rekstrarumhverfi banka á undanförnum árum. Meira en 80% allra samskipta viðskiptavina við banka eru nú rafræn og þetta hlutfall fer hækkandi. Landsbankinn segir síður þörf fyrir hefðbundin útibú og afgreiðslur en verið hefur vegna þess að 80 prósent allra samskipta viðskiptavina við banka eru rafræn og að það hlutfall fari hækkandi. Þá er sögð afar rík krafa um hagræðingu í bankakerfinu í heild og leggur Landsbankinn áherslu á að draga úr kostnaði í sínum rekstri. Á öðrum afgreiðslustöðum Sparisjóðs Norðurlands mun Landsbankinn áfram halda úti starfsemi, þ.e. Dalvík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri. Segist Landsbankinn ætla að halda áfram rekstri útibúanets á landinu. Eftir samruna við Sparisjóð Vestmannaeyja og Sparisjóð Norðurlands hefur útibúum og afgreiðslum Landsbankans fjölgað á ný og eru nú 37 talsins. Samruni Landsbankans og Sparisjóðs Norðurlands tók formlega gildi 4. september, eftir að hafa hlotið samþykki viðeigandi eftirlitsaðila. Frá þeim tíma tók Landsbankinn formlega við öllum skuldbindingum sjóðsins.
Tengdar fréttir Landsbankinn útvistaði lögfræðiþjónustu til Motus án útboðs Landsbankinn hefur útvistað allri innheimtu á vanskilakröfum til Motus. 27. ágúst 2015 11:45 Landsbankinn: Hagnaðist um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi árs Hreinar vaxtatekjur voru 16,2 milljarðar króna og hækka um 6% á milli tímabila. 20. ágúst 2015 17:08 Forsætisráðherra ítrekaði gagnrýni sína á Landsbankann úr ræðustól Alþingis Sala á eignarhlut ríkisins í Landsbankanum var til umræðu á Alþingi í dag. 14. september 2015 16:39 Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira
Landsbankinn útvistaði lögfræðiþjónustu til Motus án útboðs Landsbankinn hefur útvistað allri innheimtu á vanskilakröfum til Motus. 27. ágúst 2015 11:45
Landsbankinn: Hagnaðist um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi árs Hreinar vaxtatekjur voru 16,2 milljarðar króna og hækka um 6% á milli tímabila. 20. ágúst 2015 17:08
Forsætisráðherra ítrekaði gagnrýni sína á Landsbankann úr ræðustól Alþingis Sala á eignarhlut ríkisins í Landsbankanum var til umræðu á Alþingi í dag. 14. september 2015 16:39