Patrekur og félagar úr leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. janúar 2015 17:09 Vytautas Ziura og félagar hans eru úr leik. vísir/getty
Heimamenn í Katar eru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir tveggja marka sigur, 29-27, á lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu. Heimamenn byrjuðu betur og voru jafnan á undan til að skora í fyrri hálfleik. Þeir náðu þó aldrei meira en tveggja marka forystu og gekk illa að hrista austurríska liðið af sér. Austurríki átti góðan kafla undir lok fyrri hálfleiks og leiddi í leikhléi, 13-14. Lærisveinar Patreks náðu tveggja marka forystu í upphafi seinni hálfleiks en í stöðunni 14-16 kom góður kafli hjá katarska liðinu sem skoraði fjögur mörk í röð og náði forystunni, 18-16. Aldrei munaði þó meiru en tveimur mörkum á liðunum og Austurríkismenn náðu nokkrum sinnum að jafna metin um miðbik seinni hálfleiks. En heimamenn voru sterkari á lokasprettinum en óhætt er að segja þeir hafi fengið góða hjálp frá króatískum dómurum leiksins sem reyndust þeim ansi hliðhollir. Lokatölur 29-27, Katar í vil en liðið hefur aldrei komist svo langt á HM. Zarko Markovic var markahæstur í liði Katar með átta mörk en Rafael Capote kom næstur með sjö. Robert Weber skoraði átta mörk fyrir Austurríki en miklu munaði um að félagi hans í vinstra horninu, Raul Santos, náði sér ekki á strik og skoraði aðeins tvö mörk úr átta skotum.
HM 2015 í Katar Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira