Stórleikur Sigurbergs dugði ekki til | Magdeburg gerði jafntefli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2015 19:55 Sigurbergur skoraði átta mörk í kvöld. vísir/valli
Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Magdeburg gerðu jafntefli við Wetzlar, 31-31, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Wetzlar var með yfirhöndina framan af leik og leiddi jafnan með 2-3 mörkum í fyrri hálfleik. Magdeburg náði hins vegar góðum kafla undir lok fyrri hálfleik og breytti stöðunni úr 17-13 í 18-13 sem voru hálfleikstölur. Leikurinn var æsispennandi í seinni hálfleik en aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Yves Grafenhorst kom Magdeburg yfir, 30-31, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir en Sebastian Weber jafnaði metin á 59. mínútu. Weber fékk svo tækifæri til að tryggja Wetzlar sigurinn á lokasekúndunum en Jannick Green varði skot hans í þann mund sem leikklukkan gall. Robert Weber var eins og svo oft áður í vetur markahæstur í liði Magdeburg en Austurríkismaðurinn skoraði 13 mörk í kvöld. Michael Haas kom næstur með fjögur mörk. Sigurbergur Sveinsson skoraði átta mörk þegar Erlangen tapaði með tveggja marka mun fyrir Hannover-Burgdorf, 35-33. Sigurbergur skoraði mörkin átta úr aðeins 11 skotum en hann átti auk þess tvær stoðsendingar. Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk fyrir Hannover, þar af eitt úr vítakasti. Ólafur Guðmundsson komst ekki á blað. Gunnar Steinn Jónsson og félagar hans í Gummersbach máttu sætta sig við fimm marka tap fyrir Minden á heimavelli, 27-32. Gunnar skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu. Þá vann Friesenheim tveggja marka útisigur á Lübbecke, 24-26.
Handbolti Mest lesið Fyrsta trans konan til að vinna háskólatitil fær ekki að keppa á ÓL Sport Grótta sækir liðsstyrk frá föllnum Selfyssingum Handbolti Thiago Motta tekinn við Juventus Fótbolti „Maður finnur aðeins til með liðinu að þurfa að spila á þessum velli” Fótbolti Rifta samningi við dýrasta leikmann félagsins Fótbolti „Þurfum að fara láta þetta falla fyrir okkur núna“ Fótbolti Hjartnæm stund í Árbænum: Gestirnir gáfu sektarsjóðinn er Fylkismenn minntust fallins félaga Íslenski boltinn Uppgjör: Þór Ak. - Stjarnan 0-1 | Róbert Frosti dró Stjörnuna í undanúrslit Íslenski boltinn Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Körfubolti Guðrún og stöllur enn með fullt hús eftir risasigur í Íslendingaslag Fótbolti Fleiri fréttir Grótta sækir liðsstyrk frá föllnum Selfyssingum Kári Kristján verður áfram með ÍBV: „Tek annað hókípókí með krökkunum“ Sakaður um tilraun til nauðgunar en sektaður fyrir að bera sig Aron og Thea Imani mikilvægust í vetur „Ætlum að byggja upp til framtíðar“ Telur sig eiga heima í íslenska landsliðinu Viktor Gísli lagðist undir hnífinn: „Best að klára þetta núna þar sem við erum ekki að fara á Ólympíuleikana“ Barcelona Evrópumeistari eftir naglbít Skaðinn skeður í hálfleik hjá Magdeburg Reynir við fyrsta Evrópumeistaratitilinn í áttunda sinn í sínum síðasta leik Aðalsteinn tekur við Víkingum Börsungar elta Álaborg í úrslit Ómar Ingi með stórleik en Álaborg fór í úrslit Thea áfram í herbúðum þreföldu meistaranna Einar Baldvin til Aftureldingar Heldur út í atvinnumennsku og ætlar sér fast sæti í landsliðinu Hin þaulreynda Rut gengin í raðir silfurliðs Hauka Viktor ekki á förum frá Nantes: „Kitlaði alveg egóið að heyra þetta“ Segja að Viktor Gísli fari til Póllands og svo til Barcelona Guðmundur Helgi stígur til hliðar í Mosfellsbæ Oddur og Teitur í liði umferðarinnar eftir kveðjuleiki sína Gunnar Steinn snýr heim og stýrir Fjölni í Olís deildinni Landin hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Orri og félagar þrefaldir meistarar í Portúgal Meistaradeildartitillinn til Ungverjalands Teitur og Oddur voru báðir níu af níu í lokaumferðinni Óðinn tvöfaldur meistari i Sviss: Markahæstur í oddaleiknum Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Tveir Færeyingar til silfurliðsins Sjá meira
Hjartnæm stund í Árbænum: Gestirnir gáfu sektarsjóðinn er Fylkismenn minntust fallins félaga Íslenski boltinn
Viktor Gísli lagðist undir hnífinn: „Best að klára þetta núna þar sem við erum ekki að fara á Ólympíuleikana“
Hjartnæm stund í Árbænum: Gestirnir gáfu sektarsjóðinn er Fylkismenn minntust fallins félaga Íslenski boltinn