Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Fram 30-18 | Eyjamenn fóru illa með þá bláu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2015 18:06 Magnús Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir ÍBV í dag. Vísir/Stefán
Fram mátti þola tólf marka tap fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld en liðið hefur ekki enn unnið deildarleik eftir áramót. Sigurinn var aldrei í hættu en Framarar virkuðu andlausir og virtust ekki nenna þessu. Fram, sem tapaði fyrir HK í síðustu umferð, náði jafntefli við ÍBV á heimavelli fyrir rúmri viku síðan en það er eina stigið sem liðið hefur fengið í Olísdeild karla á þessu ári. Sigur ÍBV var sannfærandi í kvöld en Eyjamenn voru þeir einu sem áttu eftir að vinna Fram í deildinni. Framarar töpuðu fyrir botnliði HK í síðustu umferð. Magnús Stefánsson, fyrrum leikmaður Fram, var markahæstur Eyjamanna með sjö mörk í kvöld. Garðar B. Sigurjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Fram. ÍBV hefur verið að styrkjast á síðustu vikum en leikmenn eru að koma úr meiðslum. Brynjar Karl Óskarsson er þó enn að glíma við meiðsli, fyrir utan það eru allir menn Eyjamanna heilir. Hjá Frömurum er Stefán Darri Þórsson að glíma við meiðsli en við það veikist lið þeirra mjög mikið. Þegar þessi lið mættust fyrir rétt rúmri viku síðan skildu þau jöfn en Eyjamenn áttu séns á því að skora sigurmarkið undir lokin. Jafnteflið í þeim leik gerði það að verkum að ÍBV var eina liðið sem ekki hafði unnið Fram á tímabilinu. Framarar skoruðu fyrstu tvö mörkin en þá komust Eyjamenn loks í gírinn. Þeir náðu fljótt forystu og héldu henni út allan leikinn, það var í raun aldrei möguleiki fyrir Framara að koma til baka. Eyjamenn misstu mann útaf í stöðunni 8-6 en sýndu þá mikinn styrk. Þeim tókst að hanga á boltanum lengi og skora mark en það gerði Magnús Stefánsson, fyrirliði liðsins. Magnús átti frábæran leik í dag en hann skoraði sjö mörk úr átta skotum. Það má segja að hann hafi dregið vagninn bæði varnar- og sóknarlega. Sigurður Örn Þorsteinsson, skytta Framara, virðist hafa átt að draga vagninn fyrir gestina. Hann var með skotleyfi hvar sem er á vallarhelmingi Eyjamanna. Alls tók hann fimmtán skot í leiknum og skoraði einungis úr fjórum. Það gerði hann þó að markahæsta leikmanni liðsins ásamt Garðari B. Sigurjónssyni. Eyjamenn skoruðu fjögur af fimm síðustu mörkum fyrri hálfleiks, auk þess klikkaði Theodór Sigurbjörnsson á víti. Eyjamenn leiddu því með fimm mörkum í hálfleik 13-8. Í síðari hálfleik byrjuðu Framarar vel og skoruðu fyrstu þrjú mörkin. Þá munaði einungis tveimur mörkum á liðunum. Heimamenn gerðu þá vel og gáfu í staðinn fyrir það að gefa eftir. Þeir skoruðu sjö af næstu átta mörkum og gjörsamlega kafsigldu Frömurum. Þá leit þetta alls ekki vel út fyrir gestina sem reyndu hvað þeir gátu að minnka forskotið. Þeim tókst nokkrum sinnum að minnka muninn í sjö mörk en þeir komust þó ekki nær. Eyjamenn gengu á lagið og skoruðu margir ungir leikmenn mörk. Hákon Daði Styrmisson fór þar fremstur í flokki en hann skoraði þrjú mörk. Magnús Karl Magnússon skoraði þá fyrsta markið sitt fyrir meistaraflokk. Eyjamenn lyfta sér með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar og minnka forskot FH-inga í eitt stig í fjórða sætinu. Eyjamenn eiga enn einn leik inni gegn Stjörnunni. Framarar eru í áttunda sæti deildarinnar og eru svo sannarlega að bjóða hættunni heim með svona spilamennsku.Guðlaugur Arnarsson: Munum nýta pásuna vel „Ég er alls ekki sáttur með að tapa og sérstaklega þegar við töpum svona stórt,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Framara, eftir enn einn tapleik sinna manna í Olís-deildinni. Sóknarleikur Framara var á köflum afleitur og í raun ekkert líkt því sem maður sér vanalega í Olís-deildinni. „Sóknarleikurinn var stirður í dag þegar leið á leikinn. Við reyndar byrjum leikinn vel og það er jafnt á flestum tölum upp að 15-20 mínútu. Þá kemur hikst á sóknarleikinn hjá okkur og við förum að rétta þeim boltann auðveldlega.“ Framarar áttu slæman kafla undir lok fyrri hálfleiks sem virðist hafa drepið stemninguna í liðinu. „Við ætlum að reyna að koma sterkir inn í seinni hálfleikinn, það gengur ekki alveg upp og við töpum boltanum of auðveldlega sóknarlega.“ „Við náðum ekki að leysa vörnina þeirra eins vel og við höfðum gert hingað til,“ sagði Guðlaugur um það hvernig þessi leikur var frábrugðinn öðrum leikjum gegn Eyjamönnum. „Við ætlum að nýta pásuna vel, við ætlum að skipuleggja okkur upp á nýtt og nýta tímann mjög vel fyrir síðasta hluta mótsins.“ Framarar hafa lent í gríðarlega miklum meiðslum það sem af er móti en Guðlaugur segir að það styttist allavega í einn örvhentan, en að sama skapi að Stefán Darri verði ekki meira með á þessu ári.Gunnar Magnússon: Við héldum einbeitingu „Þetta var frábær leikur en við mættum tilbúnir til leiks og lærðum af þeim mistökum sem við gerðum fyrir viku síðan,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Eyjamanna, eftir flottan sigur sinna manna á Fram í Vestmannaeyjum í kvöld. „Við vorum einbeittir, Framararnir spiluðu langar sóknir. Við vissum að þetta tæki á, ég er ánægður með varnarleikinn og markvörsluna. Við héldum einbeitingu og náðum að refsa þeim með hraðaupphlaupum,“ sagði Gunnar en vörn Eyjamanna var frábær á köflum. Gunnar var mjög ósáttur eftir leik sinna manna gegn Fram á fasta landinu en hann sagði að þeir hefðu lært af mistökunum. „Við vorum oft óþolinmóðir, skutum snemma og vorum lengi í vörn. Nú gáfum við okkur meiri tíma í sóknarleikinn og voru hnitmiðari í öllum aðgerðum.“ „Liðsheildin skóp sigurinn. Maggi var frábær í vörn og sókn, varnarleikurinn var mjög góður.“ „Við náðum þessum hröðu upphlaupum sem við þurfum á að halda. Það skiluðu allir sínu og það var gaman að sjá ungu strákana koma inn og skila sínu,“ sagði Gunnar sem var mjög ánægður með ungu strákana. Fjórir leikmenn sem komu við sögu í kvöld eru að fara að spila undanúrslitaleik á morgun í 2. flokki karla þar sem Valsmenn koma í heimsókn.
Olís-deild karla Mest lesið Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Körfubolti „Hann hefði bara átt að kyngja þessu, vera stór og halda áfram úti“ Körfubolti Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Handbolti KR í samstarf við akademíu í Gana Fótbolti Áhugamaður vann meistarann og milljón dollara Sport Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ Handbolti Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Fótbolti Fleiri fréttir Spánverjar lögðu Serba og Frakkar völtuðu yfir Tékka ÍR - ÍBV | Geta tyllt sér á toppinn EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Viktor Gísli brattur: „Bara jákvætt að það sé pressa“ Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Stelpurnar okkar fögnuðu stórum sigrum Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM „Allt um þjóðhátíðina í Kristianstad“ Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Sigvaldi ekki hafnað launalækkun Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Anton og Jónas dæma fyrsta leik á EM Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Árituð landsliðstreyja á uppboði til styrktar Ljósinu Mathias „Gæsling“ kemur til Andabæjar „Hann er góð skytta en ekkert sérstakur hornamaður“ Utan vallar: Betra er frensí en fálæti „Það sem hefur orðið okkur að falli á síðustu mótum“ Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Meistaraþjálfari danska landsliðsins segist hafa breytt um stíl Guðjón Valur fær Garðar til Gummersbach Sjá meira