Forstjóri ISAL: Aukin verktaka hefur áhrif á þrjátíu til fjörtíu störf Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. ágúst 2015 22:25 Rannveig Rist vísir/gva
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, hefur sent starfsmönnum fyrirtækisins bréf til að útskýra afstöðu fyrirtækisins í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Yfirvinnubann starfsmanna álversins í Straumsvík hófs síðustu mánaðamót og stendur enn yfir. Ekkert hefur þokast í kjaraviðræðunum síðan þá. Nái ekki að semjast fyrir 1. september næstkomandi hefst verkfall í álverinu. Rannveig byrjar bréfið á að segja að eftirminnilegasta bréf sem hún hafi skrifað starfsfólkinu hafi verið bréf frá 14. nóvember 2008 þar sem hún tilkynnti að ákveðið hefði verið að greiða ein og hálf mánaðarlaun til starfsmanna aukalega í kjölfar kreppunnar. Tilefnið nú væri hins vegar ekki eins ánægjulegt. „Fyrr í sumar hafnaði samninganefnd starfsmanna stuttum kjarasamningi, þrátt fyrir að umtalsverð launahækkun sé í boði. [...] Mun tilboðinu meðal annars hafa verið hafnað vegna kröfu fyrirtækisins um að mega bjóða fóðrun kera út á almennum markaði,“ segir í bréfinu. Hún segir að ISAL fari fram á að hafa svipað svigrúm og önnur fyrirtæki á Íslandi til að bjóða út tiltekna þætti í rekstrinum. Ekkert annað fyrirtæki búi við jafn þröngan kost þegar kemur að því og ISAL. Hún segir einnig að sá þáttur sem fyrirhugað sé að bjóða út snerti 30-40 störf en ekki 80-120 líkt og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Hún segir staðreynd að ISAL greiði hærri laun en gengur og gerist fyrir sambærileg störf á landinu. Meðallaun verkamanna á liðnu ári hafi verið 475.000 krónur á mánuði og þá er yfirvinna, orlof og desemberuppbót ekki talin inn í dæmið. Enn fremur verði að taka með í reikninginn að á árunum 2012 og 2013 hafi fyrirtækið tapað alls sjö milljörðum króna og staða á álmörkuðum sé almennt slæm. „Allt ofangreint felur í sér sterk og málefnaleg rök fyrir því að ISAL ætti að þessu sinni að bjóða kauphækkanir sem taka mið af fjárhagsstöðu fyrirtækisins og stöðu áliðnaðarins,“ skrifar Rannveig og bætir við að stjórnendur fyrirtækisins hafi fengið að meðaltali 2,95% launahækkanir á þessu ári. Þrátt fyrir það sé fyrirtækið til viðræðna um áþekkar launahækkanir og aðrir aðilar á Íslandi hafa samið um það sem af er ári. „Vinnustöðvanir fela í sér óvissu og aukið álag. Það er hætt við að hugurinn verði annars staðar en við hin daglegu störf. Á óvissutímum sem þessum er því sérstaklega mikilvægt að sýna fyllstu árvekni og aðgæslu,“ segir Rannveig í niðurlagi bréfsins.
Tengdar fréttir Starfsmenn álversins í Straumsvík segja stjórnendur stunda hræðsluáróður Starfsmenn álversins í Straumsvík segja upplýsingafundi stjórnenda fyrirtækisins um kjaraviðræður einkennast af duldum hótunum og hræðsluáróðri. 26. júlí 2015 19:05 Starfsmenn hræðast afstöðu Rio Tinto Nokkrar undanþágur hafa verið veittar á yfirvinnubanni starfsmanna álversins í Straumsvík um helgina tryggja öryggi og að ekki verði tjón á búnaði eða framleiðslu. 3. ágúst 2015 21:30 Krafa um aukna heimild til verktöku lögð til hliðar Forgangskrafa stjórnenda álversins í Straumsvík um aukna heimild til verktöku verður lögð til hliðar á meðan launakjör starfsmanna verða rædd. Þetta var ákveðið á fundi hjá Ríkissáttasemjara í dag. Annar fundur er boðaður á morgun. 4. ágúst 2015 20:00 Slökkt á kerskálanum ef það kemur til verkfalls Stjórnendur álversins í Straumsvík segja að slökkva verði á kerskála í verksmiðjunni ef kemur til verkfalls starfsmanna eftir rúman mánuð en yfirvinnubann hefst þar á föstudag. Ef slökkt verði á kerskálanum jafngildi það að fyrirtækinu verði lokað. 28. júlí 2015 19:15 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Starfsmenn álversins í Straumsvík segja stjórnendur stunda hræðsluáróður Starfsmenn álversins í Straumsvík segja upplýsingafundi stjórnenda fyrirtækisins um kjaraviðræður einkennast af duldum hótunum og hræðsluáróðri. 26. júlí 2015 19:05
Starfsmenn hræðast afstöðu Rio Tinto Nokkrar undanþágur hafa verið veittar á yfirvinnubanni starfsmanna álversins í Straumsvík um helgina tryggja öryggi og að ekki verði tjón á búnaði eða framleiðslu. 3. ágúst 2015 21:30
Krafa um aukna heimild til verktöku lögð til hliðar Forgangskrafa stjórnenda álversins í Straumsvík um aukna heimild til verktöku verður lögð til hliðar á meðan launakjör starfsmanna verða rædd. Þetta var ákveðið á fundi hjá Ríkissáttasemjara í dag. Annar fundur er boðaður á morgun. 4. ágúst 2015 20:00
Slökkt á kerskálanum ef það kemur til verkfalls Stjórnendur álversins í Straumsvík segja að slökkva verði á kerskála í verksmiðjunni ef kemur til verkfalls starfsmanna eftir rúman mánuð en yfirvinnubann hefst þar á föstudag. Ef slökkt verði á kerskálanum jafngildi það að fyrirtækinu verði lokað. 28. júlí 2015 19:15