ASÍ gagnrýnir forgangsröðun fjárlagafrumvarpsins Sæunn Gísladóttir skrifar 13. október 2015 14:58 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir forgangsröðun sem fram kemur í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Ljósin sem vara við ofþenslu í efnahagslífinu blikka í frumvarpinu. Að mati miðstjórnar ASÍ eru áherslurnar í frumvarpinu rangar þar sem velferðarþjónusta í landinu situr á hakanum þar sem aukin framlög dekka fyrst og fremst miklar kostnaðarhækkanir. Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015. Í umsögninni segir að framlög til þjónustu í velferðarkerfinu séu ekki að aukast að raungildi sem sé dapurlegt þegar hagur þjóðarinnar fer batnandi, en ljóst sé að endurreisa þarf velferðarþjónustu eftir hrun. Miðstjórnin telur að stór velferðarverkefni séu enn sem komið er ófjármögnuð og nefnir þar heilbrigðistþjónustuna, endurskipulagningu öldrunarþjónustu, menntaúrræði og félagslegt húsnæðiskerfi. Miðstjórnin telur að jákvætt skref hafi verið stigið í félagslegu húsnæðiskerfi en að það dugi engan veginn til. Miðstjórnin telur gagnrýnivert að fyrstu viðbrögð ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu áhrifum sé að halda velferðarþjónustunni nirði. Það sé röng forgangsröðun í landi sem vill kenna sig við norrænt velferðarsamfélag og mun þegar til lengri tíma er litið ýta undir ójöfnuð og ágreining. ASÍ telur með öllu ósættanlegt að með frumvarpinu sé verið að draga úr vægi bæði vaxta- og barnabóta og bendir á að viðmiðunarfjárhæðir barnabóta hækka einungis um 5% og halda þannig ekki í við áætlaðar hækkanir á vísitölu neysluverðs milli ára. Alþýðusambandið lýsir einnig yfir áhyggjum af efnahagslegum áhrifum fjárlagafrumvarpsins. Þegar gert sé ráð fyrir 15,3 milljarða afgnagi af fjárlögum á eftir að taka tillit til áhrif gerðardóms og áhrif þeirra samninga sem ekki var lokið í sumarbyrjun. Því megi gera ráð fyrir að í meðförum þingsins verði að leiðrétta launaforsendur fjárlaganna til hækkunar. Þá hafi einnig verið gefin vilyrði fyrir auknum útgjöldum á næsta ári sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Því telur ASÍ að gera megi ráð fyrir nokkru minni afgangi. Hagvísar benda til þess að þensla fari vaxandi í hagkerfinu, þá er mikilvægt að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar eins og hún birtist í fjárlögunum og peningastefna Seðlabankans vinni í sömu átt. ASÍ segir að því miður sé misbrestur á því og telur þetta ekki ásættanlegt og að þetta muni að óbreyttu leiða til meiri verðbólgu en ella og hærri vaxta.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira