Fáum vonandi annað tækifæri fljótlega Kristinn Páll Teitsson skrifar 5. ágúst 2015 07:30 Íslandsmeistararnir verða ekki með í Evrópu á næsta ári eins og til stóð . Vísir/Auðunn
Böðvar Guðjónsson, varaformaður körfuknattleiksdeildar KR, sagði að sú niðurstaða að KR tæki ekki þátt í Evrópukeppninni að þessu sinni væri óvænt og að vissu leyti svekkjandi. KR stefndi að því að taka þátt í Evrópukeppninni í haust en það hefði verið í fyrsta sinn frá árinu 2007 sem íslenskt lið tæki þátt í keppninni. „Þegar þessi keppni var kynnt fyrir okkur áttu 64 lið að taka þátt en á síðustu stundu var ákveðið að skera niður í 56 lið. Við úthlutun sæta var síðan farið eftir styrkleikalista og þar kom í bakið á okkur að íslensk lið hafa ekki tekið þátt undanfarin ár. Við fengum einfaldlega ekki sæti að þessu sinni vegna þátttökuleysis íslenskra liða undanfarin ár,“ sagði Böðvar, sem sagðist hafa rætt við formann Körfuknattleikssambands Íslands, Hannes S. Jónsson, um möguleika íslenskra liða á erlendri grundu. „Ég er búinn að vera í góðu sambandi við Hannes sem er búinn að vera að aðstoða okkur. Þetta mál verður rætt á næsta stjórnarfundi og vonandi gefst íslenskum liðum tækifæri til að taka þátt á næstu árum,“ sagði Böðvar.Dregur ekki úr aðdráttarafli KR Böðvar bjóst ekki við að þetta myndi hafa áhrif á leikmannamál en enn er eftir að ganga frá samningi við Michael Craion. „Þetta dregur að mínu mati ekkert úr því aðdráttarafli sem KR hefur. Árangurinn undanfarin ár hefur verið til fyrirmyndar og hefur þetta verið góður gluggi fyrir erlenda leikmenn að sýna sig ásamt því að vinna titla. Hann bað um samningstilboð sem bíður í höndum hans og ef svo ólíklega vill til að við þurfum að leita að nýjum Kana þá vitum við allavega hvernig leikmann við þurfum.“
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira