Milljarði minna í veiðigjöld nú en á síðasta ári Aðalsteinn Kjartansson skrifar 9. nóvember 2015 14:43 Stærstu greiðendurnir eru skráði í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Vísir/CartoDB
Rúmum milljarði minna er lagt á útgerðir vegna sérstakra veiðigjalda nú en í fyrra. Samtals greiða útgerðir 3,1 milljarð í sérstakt veiðigjald samanborið við 4,8 milljarða í fyrra. Þetta kemur fram í tölum á vefsíðu Fiskistofu, sem birti fyrir helgi upplýsingar um veiðigjöld vegna fiskveiðiársins 2014/2015. Í gögnunum kemur fram að heildarfjárhæð almenns og sérstaks veiðigjalds nemur 7,7 milljörðum samanborið við 9,2 milljörðum í fyrra. Stærstu greiðendurnir eru skráði í Reykjavík og Vestmannaeyjum. HB Grandi greiðir mest, eða rúman milljarð króna. Næst á eftir kemur Síldarvinnslan, sem greiðir 729 milljónir og þar skammt undan er Ísfélag Vestmannaeyja, sem greiðir 680 milljónir króna. Á kortinu má sjá hvaða staðir á landinu skiluðu mestum veiðigjöldum.73 fyrirtæki sem greiða veiðigjöld eru skráð í Reykjavík, sem gerir borgina bæði stærsta og fjölmennsta útgerðarstað landsins. Fyrirtæki í Reykjavík greiddu 1,6 milljarð króna. Næst flest fyrirtæki eru í Hafnarfirði, eða 51, en þau greiða samtals 41 milljón króna. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum greiða að jafnaði mest en samtals greiða 26 fyrirtæki skráð í bænum 1,5 milljarð króna. Það þýðir að jafnaði greiðir hvert fyrirtæki tæpar 58 milljónir króna, sem er meira en 47 fyrirtæki á Stykkishólmi greiddu samtals. Í töflunni eru upplýsingar yfir heildarveiðigjöld, bæði sérstök og almenn, með teknu tilliti til afsláttar, sem hvert fyrirtæki greiðir.
Mest lesið Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira