Sport

Maia sló Gunnar 193 sinnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Maia í bardaganum gegn Gunnari um helgina.
Maia í bardaganum gegn Gunnari um helgina. Vísir/Getty
Gunnar Nelson tapaði sínum öðrum bardaga á MMA-ferli sínum er hann mætti Demian Maia á UFC 194 í Las Vegas um helgina.

Brasilíumaðurinn Maia vann sigur á stigum eftir einróma úrskurð dómara en eins og sjá má á tölum bardagans voru yfirburðir Maia gríðarlegir.

Sjá einnig: Sjáðu bardaga Gunnars í heild sinni

Maia hafði undirtökin í bardaganum í 10 mínútur og 55 sekúndur. Gunnar í 2:20 mínútur. Maia sló Gunnar alls 193 sinnum, Gunnar svaraði aðeins sjö sinnum í sömu mynt.

„Þetta var ekki minn dagur. Ég upplifði sjálfan mig lélegan. Mér leið ekki vel og fannst ég aldrei vera almennilegur í öllum bardaganum," sagði Gunnar en tölfræði bardagans má sjá hér fyrir neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar Nelson missti af risatækifæri

Gunnar Nelson sá aldrei til sólar í bardaga sínum gegn Brasilíumanninum reynda Demian Maia. Gunnar viðurkenndi að hafa verið lélegur en ætlar sér að koma sterkari til baka eftir þetta tap.

Gunnar: Ég var lélegur

Gunnar Nelson var bólginn og blár er Vísir hitti á hann í Las Vegas eftir tapið gegn Demian Maia í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×