„Drengurinn var bara þakinn í gleri“ Birgir Olgeirsson skrifar 18. desember 2015 15:15 Hér má sjá hvernig glerinu rigndi yfir bílinn og var fjögurra ára sonur Sæþórs þakinn í gleri. Vísir/Aðsent „
Það voru þarna einhver tonn af gleri sem stráðust yfir bílinn,“ segir Sæþór Steingrímsson um óhapp sem varð við Höfðabakkabrúna á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Óhappið var með þeim hætti að vörubílstjóri hafði gleymt því að hann væri með háan glerfarm á pallinum og fór svo að hann skall upp undir Höfðabakkabrúna. Kona Sæþórs var í þann mund að reyna að aka fram úr vörubílnum og komin yfir á vinstri akrein þegar glerinu rigndi yfir bílinn. Glerbrotin fóru út um allan bíl í gegnum topplúguna og rúðuna farþegamegin við hlið bílstjórasætisins.Sæþór segir konuna sína hafa náð að halda bílnum á veginum og komið í veg fyrir að hann færi á aðra bíla. Áfallið hafi hins vegar verið mikið og ekki minnkaði það þegar hún leit aftur í bílinn þar sem fjögurra ára sonur hennar var. „Drengurinn var bara þakinn í gleri. Það er einhver verndarengill yfir honum því það var ekki skráma á honum.“Sjálfur var Sæþór í vinnu á Korputorgi þegar óhappið átti sér stað og var mjög fljótur á staðinn. Hann ræddi við ökumann vörubílsins. „Hann var alveg miður sín. Hann vissi alveg af þessum farmi svo bara steingleymdi hann því þegar hann var á leiðinni úr bænum,. Hann ætlaði að fara upp á brúna, auðvitað má ekki keyra undir brúna með svona háan farm,“ segir Sæþór. Hann segir konu sem varð vitni að þessu óhappi hafa boðið konu Sæþórs og syni inn í bíl til sín og hlúð að þeim þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang. „Hún tók vel utan um þau. Alveg frábær kona,“ segir Sæþór.
Tengdar fréttir Gleymdi sér og augnabliki síðar rigndi gleri "Nálægir vegfarendur geta verið í stórhættu ef eitthvað ber útaf. Hingað til hefur þetta sloppið en stundum hefur munað litlu,“ segir Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður á umferðardeild lögreglu. 18. desember 2015 13:46 Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Gleymdi sér og augnabliki síðar rigndi gleri "Nálægir vegfarendur geta verið í stórhættu ef eitthvað ber útaf. Hingað til hefur þetta sloppið en stundum hefur munað litlu,“ segir Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður á umferðardeild lögreglu. 18. desember 2015 13:46
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent