Fiskiskip frá Norður-Kóreu reka að landi í Japan Samúel Karl Ólason skrifar 1. desember 2015 14:17 Eitt af draugaskipunum svokölluðu. Vísir/AFP
Vanbúin fiskiskip hafa rekið að landi í Japan síðustu vikur. Í skipunum eru lík sjámanna og er útlit fyrir að áhafnir hafi villst af leið. Skipin eru ekki búin staðsetningartækjum og talið er að þeim hafi verið siglt of langt frá landi í leit að auknum afla. Alls hafa 12 skip og bátar fundist við og á ströndum Japan frá því í október. Í þeim voru 22 lík, samkvæmt frétt Reuters. Sumir bátarnir eru úr timbri og hafa einungis fundist hlutar af einhverjum þeirra.Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu heimsótti nýverið fiskvinnslu þar í landi.Vísir/AFPKim Jong-un hefur fyrirskipað að auka eigi veiðar í Norður-Kóreu til að efla hagkerfi einræðisríkisins. Minnst eitt skipið er talið hafa verið undir stjórn hersins. Sérfræðingar sem Reuters ræddu við segja líklegt að áhafnir skipanna hafi farið lengra frá landi en þeir réðu við til að finna gjöful fiskimið. Skipin láta illa á sjó og eru búin lélegum vélum sem bila gjarnan. Talið er að sjómennirnir hafi látið lífið úr hungri eða vegna kulda, eftir að skipin týndust. Milljónir manna í Norður-Kóreu eiga yfirleitt ekki nógan mat og herinn kemur að matvælaframleiðslu í landinu. Þar á meðal fiskveiðum.
Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Innlent Skammt stórra högga á milli Veður Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Fleiri fréttir Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Sjá meira