Greina frá áður óþekktri grimmd gíslatökumannanna í München 1972 Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2015 14:50 Ilana Romano, ekkja kraftlyftingamannsins Yossef Romano, og Ankie Spitzer, ekkja skylmingaþjálfarans Andre Spitzer árið 2012. Vísir/AFP
Eiginkonur og aðrir fjölskyldumeðlimir ísraelsku íþróttamannanna, sem drepnir voru í gíslatöku palestínskra hryðjuverkamannanna á Ólympíuleikunum í München árið 1972, hafa í fyrsta sinn greint opinberlega frá áður óþekktum grimmdarverkum gíslatökumannanna og morðingja eiginmanna og ástvina þeirra. Á meðal þeirra upplýsinga sem nú hafa komið fram eru að ísraelsku fórnarlömbin hafi verið barin til óbóta á meðan þeim var haldið og kynfæri að minnsta kosti eins þeirra skorin af. „Það sem þeir gerðu voru að skera kynfæri hans af í gegnum nærfötin og börðu hann. Getur þú ímyndað þér hina níu, bundna, þar sem þeir fylgdust með? Þeir urðu vitni að þessu,“ segir Ilana Romano, eiginkona kraftlyftingamannsins Yossef Romano, sem lést í árásinni.Ellefu Ísraelsmenn létust Hópur átta palestínskra hryðjuverkamanna réðust inn í íbúðir ísraelsku Ólympíufaranna í Ólympíuþorpinu í München að morgni 5. september 1972. Eftir tuttugu klukkustunda umsátur og misheppnaðar aðgerðir lögreglu til að frelsa gíslana lágu ellefu Ísraelsmenn í valnum, auk þýsks lögreglumanns. Hryðjuverkamennirnir höfðu farið fram á að 234 palestínskum föngum í Ísrael yrði sleppt, auk stofnenda Baader-Meinhof-hreyfingarinnar. Fimm gíslatökumannanna voru drepnir og þrír handteknir í aðgerðum lögreglu.Í frétt New York Times kemur fram að í september 1992 hafi tvær ekkjur ísraelskra íþróttamanna sem féllu í árásinni, farið á fund lögfræðings þeirra. Sá sagðist hafa fengið sendar ljósmyndir sem teknar voru í íbúðunum í München eftir árásirnar. Lögfræðingurinn sagði að hann ráðlagði þeim að skoða ekki myndirnar. Þær kröfðust þess þó að fá að gera það, en sögðust ekki ætla að ræða málið opinberlega.Vilja að hinir látnu fái viðurkenningu Fjölskyldumeðlimir fórnarlambanna segjast nú greina opinberlega frá þessu í tilraun til að hinir látnu fái þá viðurkenningu sem þeir telja þá eiga skilið. Rætt er við Ilönu Romano og aðra fjölskyldumeðlimi fórnarlambanna í myndinni „Munich 1972 & Beyond“ sem frumsýnd verður á næsta ári.Jacques Rogge, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, minnist fórnarlambanna í Aþenu 2004.Vísir/AFP
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Sjá meira