Svartfjallalandi boðin NATO-aðild guðsteinn bjarnason skrifar 3. desember 2015 06:00 Igor Lukicz, aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Svartfjallalands, tekur í höndina á Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATO. Fréttablaðið/EPA
Svartfjallaland Fyrir sextán árum stóð Atlantshafsbandalagið, NATO, fyrir sprengjuárásum á Svartfjallaland, sem þá var enn partur af Júgóslavíu og Kosovostríðið stóð sem hæst. Nú er landinu boðin aðild að NATO. „Himinlifandi með að bjóða Svartfjallalandi að hefja aðildarviðræður með það fyrir augum að verða 29. aðildarland NATO,“ sagði Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, á Twitter í gær. „Þetta er byrjunin á frábæru sambandi,“ sagði hann í gær á leiðtogafundi í Brussel. Vladimír Pútín Rússlandsforseti var hins vegar ekki sáttur við tíðindin. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, sagði að þetta myndi kalla á hörð viðbrögð af hálfu Rússa: „Áframhaldandi útþensla NATO og hernaðarinnviða NATO til austurs getur ekki annað en kallað á hefndaraðgerðir frá austri, það er frá Rússum,“ sagði Peskov. Enginn einhugur virðist ríkja í Svartfjallalandi sjálfu um hugsanlega aðild að NATO. Reiknað er með að aðildarviðræðurnar geti tekið eitt ár. Aðildarríkjum NATO var síðast fjölgað árið 2009 þegar Albanía og Króatía bættust í hópinn.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira