Danir virðast ætla að hafna breytingunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. desember 2015 20:07 Þegar um 42 prósent atkvæða höfðu verið talin voru þetta niðurstöðurnar. skjáskot
Þegar um 40 prósent atkvæða hafa verið talin virðist ljóst að Danir hafi sagt nokkuð skýrt nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í landinu í dag. Þar voru Danir spurðir hvort breyta ætti einni af fjórum ESB-undanþágum þeirra, nefnilega undanþágu frá samstarfi í innanríkis- og dómsmálum, yfir í sveigjanlega eða valkvæða undanþágu.Á vef danska ríkisútvarpsins eru útgönguspár birtar reglulega og er þar greint því að um 54 prósent kjósenda hafi hafnað breytingunum en 46 prósent verið þeim fylgjandi. Samkvæmt skoðanakönnun Epinion fyrir danska ríkisútvarpið hafa já-sinnar verið 32 prósent síðustu vikurnar, en nei-sinnar hafa sveiflast frá 34 prósentum þann 16. nóvember, niður í 29 prósent 23. nóvember og svo upp í 36 prósent þann 1. desember. Aðrar kannanir hafa ýmist sýnt nei-hliðina eða já-hliðina standa betur. Þjóðin virtist þannig vera klofin til helminga, rétt eins og tölur dagsins virðast bera með sér. Verði tillagan samþykkt, sem litlar líkur virðast vera á úr þessu, getur Danmörk valið að taka þátt í sumum málaflokkum innanríkis- og dómsmála, frekar en að vera skilyrðislaust undanþegin samstarfi í öllum málaflokkum á þessu sviði. Verði Nei-sinnarnir hins vegar ofan á er ljóst að undanþágurnar verða enn við lýði. Ástæða þess, að efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta nú, er að ýmsar breytingar hafa orðið á löggjöf Evrópusambandsins frá árinu 1993, þegar Danmörk fékk fjórar undanþágur frá Maastricht-sáttmálanum. Þessar breytingar þýða meðal annars að Europol, lögreglusamstarf ESB-ríkjanna, fer undir yfirþjóðlegt vald Evrópusambandsins í staðinn fyrir að vera áfram milliríkjasamstarf.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira