Sýknaður af nauðgun því ásetninginn skorti Snærós Sindradóttir skrifar 20. nóvember 2015 07:00 Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af nauðgun því ekki tókst að sanna að hann hefði ætlað sér að nauðga sautján ára samstarfskonu sinni. vísir/hari
Á mánudag var karlmaður sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af nauðgun því ekki tókst að sanna að hann hefði ætlað sér að nauðga sautján ára samstarfskonu sinni. Ekki var dregin í efa upplifun konunnar og áfall eftir atvikið. Nánar um dóminn hér. Rakið er í dómnum að á grundvelli hegningarlaga megi ekki refsa fyrir gáleysi nema sérstakt lagaákvæði segi svo. Ekkert slíkt sé til fyrir nauðgunarákvæði laganna. Í dómnum eru reifaðar athugasemdir sem fylgja kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga: „Þá segir í athugasemdunum að þegar ákærði neiti sök sé oft mjög erfitt að sanna huglæga afstöðu hans til verknaðarins og því verði dómstólar þá að meta hverju ákærði hafi hlotið að gera sér grein fyrir, en þannig tvinnist þá oft saman sakarmat og sönnunarmat.“Sjá einnig:Sýknaður af ákæru um nauðgun eftir árshátíðSvala Ísfeld Ólafsdóttir, dósentvísir/ValliSvala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir að í þessu máli meti dómurinn það svo að skynsamlegur vafi sé um sekt ákærða. „Sönnun í kynferðisbrotum er oft snúin þar sem orð er gegn orði og ekki öðrum sönnunargögnum til að dreifa sem styðja framburð þolandans umfram framburð gerandans,“ segir Svala. „Það má ekki gleymast að í refsirétti verður maður eingöngu sakfelldur ef hann hefur haft ásetning til að fremja brot, nema heimilt sé að refsa fyrir gáleysisverknað. Ásetningur er fortakslaust skilyrði refsiábyrgðar fyrir nauðgun,“ segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir. Nauðgun af gáleysi í norskum lögumSamkvæmt BA-ritgerð Margrétar Berg Sverrisdóttur frá 2013 sem ber heitið: Nauðgun af gáleysi. Eru skilyrði til þess að lögfesta ákvæði um refsiábyrgð vegna nauðgunar af gáleysi?, er að finna í norskum lögum ákvæði um að nauðgun af stórkostlegu gáleysi varði fimm ára fangelsi. Í ritgerðinni segir: „Nefndin sagði það sterk rök fyrir setningu ákvæðisins að staða brotaþola yrði betri fyrir vikið og ekki taldi hún að ákvæðið væri í andstöðu við réttarríkið. Hún taldi að með ákvæðinu fælust skýr skilaboð um að samfélagið sætti sig ekki við þessa hegðun. Einnig var litið til þess að margir fulltrúar brotaþola sem höfðu góða innsýn í stöðu þeirra, mæltu með því að nauðgun af gáleysi yrði gerð refsiverð“
Tengdar fréttir Sýknaður af ákæru um nauðgun eftir árshátíð Héraðsdómur Suðurlands taldi mikinn vafa leika á því hvort maðurinn hefði gerst sekur um það brot sem hann var sakaður um. 18. nóvember 2015 16:53 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík Sjá meira
Sýknaður af ákæru um nauðgun eftir árshátíð Héraðsdómur Suðurlands taldi mikinn vafa leika á því hvort maðurinn hefði gerst sekur um það brot sem hann var sakaður um. 18. nóvember 2015 16:53