Desemberspá Siggu Kling – Ljón: Sendu spennu út í alheimsorkuna 27. nóvember 2015 09:00
Elsku ljónið mitt. Þú hefur verið að sinna svo mörgu undanfarið og tilfinningar þínar eru þandar til hins ýtrasta. Ekki hugsa um að einblína á stress á þessum tíma sem er núna, fókuseraðu frekar á spennu. Að setja spennu út í alheimsorkuna færir þér betri tíð! Stjörnurnar, alheimurinn og móðir jörð hlusta á allt sem við segjum og allt sem við segjum verður að orku sem eyðist ekki svo glatt. Á svona spennutímum gerist svo margt sem við búumst ekki við og það gerir lífið svo dásamlega skemmtilegt ef vel er að gáð. Að sýna þolinmæði og að brosa frá hjartanu til allra í kringum þig hækkar orku þína og setur þig í svo fallega tíðni. Gefðu fjölskyldu og vinum meiri tíma og hlustaðu með öllu hjartanu þínu á hvað þau eru að segja. Láttu fólki líða vel í kringum þig og láttu fólkinu finnast að það sé mikilvægt. Þetta er lykillinn að því að óskirnar þínar verði að veruleika. Þú munt sjá og finna skilaboð frá mörgum manneskjum sem vilja þér vel. Að trúa og treysta er góður frasi fyrir þig í jólamánuðnum. Þú vinnur marga sigra og líka sigra yfir sjálfu þér. Þú nærð stjórn og tökum á þessu fallega lífi sem þú ert að lifa, yndislega ljónið mitt! Það er allt að gerast á hárréttum tíma fyrir þá sem eru að spá í ástina svo enga óþolinmæði í því. Það er mikill friður yfir jólunum sjálfum og engin ástæða til þess að vera að stressa sig því á endanum munt þú hugsa: Vá, þetta reddaðist allt saman! Mottó verða aldrei gömul, hér vel ég tvö sterk sem þú hefur fengið áður og þau eru að sjálfsögðu enn í gildi í desember þannig að þú skalt hafa þau hugföst í mánuðinum: Ég þarf ekki að sjá allan stigann til að taka fyrsta skrefið. Ég er mátturinn og dýrðin. Knús og koss, Sigga KlingFræg ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira